fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Myrti eiginkonu sína og fékk lítið barn sitt til að bera ljúgvitni fyrir sig

Pressan
Föstudaginn 16. janúar 2026 21:25

Robert Rhodes. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður að nafni Robert Rhodes, frá Witleigh í Surrey á Englandi, hefur verið sakfelldur fyrir morð á eiginkonu sinni árið 2016. Ári eftir morðið var hann sýknaður af ákæru um morð á grundvelli sjálfsvarnar. Hélt hann því fram að eiginkona hans hefði fyrst ráðist á sig og barn þeirra hjóna með hnífi. Barnið studdi framburð hans.

En árið 2021 greindi barnið sálfræðingi frá því að það hefði logið að beiðni föður síns.

Raunveruleikinn var sá að Robert Rhodes myrti eiginkonu sína vegna afbrýðisemi en hún hafði tekið upp ástarsamband við vinnufélaga sinn. Hann gekk svo langt í ráðabruggi sínu að veita bæði sjálfum sér og barninu áverka eftir morðið til að styðja lygasögu hans um sjálfsvörn.

Robert Rhodes var sakfelldur fyrir morðið í desember síðastliðnum. Refsing yfir honum hefur ekki verið ákveðin en hann á yfir höfði sér lífstíðardóm.

Sjá nánar á vef Mirror.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu