
Monique, 39 ára, og Spencer, 37 ára, voru skotin til bana á heimili sínu Columbus í Ohio. Spencer, sem var tannlæknir, var skotinn mörgum sinnum en eiginkona hans, Monique, var skotin einu skoti í brjóstið. Tvö ung börn þeirra og hundur voru á heimilinu og meiddust þau ekki.
Á laugardag var hinn grunaði handtekinn og er það fyrrverandi eiginmaður Monique, 39 ára læknir í Chicago, Michael David McKee.
Aðstandendur hjónanna segja við bandaríska fjölmiðla að þau hafi „öll búist við“ því að fyrrverandi eiginmaður Monique hefði verið viðriðinn morðin. Þau hefðu þó haldið þögninni á meðan rannsókn stóð yfir til að stofna henni ekki í hættu.
„Þetta kom alls ekki á óvart fyrir neinn, við bjuggumst öll við þessu, en við sögðum ekkert vegna þess að við vildum ekki stofna rannsókninni í hættu,“ sagði ættinginn í samtali við Daily Mail. „Við erum öll farin að anda aðeins léttar, því þeir náðu honum.“
McKee og Monique skildu eftir stutt hjónaband í maí 2017 og samkvæmt gögnum var skilnaðurinn í sátt beggja aðila, að því er Columbus Dispatch greinir frá. Lögregla heldur rannsókn málsins áfram en ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna McKee taldi sig eiga eitthvað sökótt við hjónin.
Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að McKee hafi verið handtekinn eftir að lögregla fór ítarlega yfir eftirlitsmyndavélar í nágrenni við heimili hjónanna umrædda nótt.
Á myndefni sást bifreið hans skammt frá heimili hjónanna umrædda nótt.