fbpx
Miðvikudagur 07.janúar 2026
Pressan

Full gremju og reiði yfir skjáeiginmanninum í Húsinu á sléttunni

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 5. janúar 2026 07:30

Grassle og Langdon í hlutverkum sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Karen Grassle lítur um öxl á tíma sinn í sjónvarpsþáttunum Húsið á sléttunni (e. Little House on the Prairie). Grassle, sem er oðin 83 ára, lék móðurina Caroline Ingalls í þáttunum á móti föðurnum Charles  Ingalls, leiknum af Michael Landon. Grassle segir að samband þeirra utan skjásins hafi verið erfitt.

Sambandið fór í hart í annarri þáttaröð þegar Landon, sem var einnig framleiðandi þáttanna, neitaði Grassle um launahækkun.

„Ég fylltist gremju og reiði og fann fyrir særðum tilfinningum og hreinni þreytu,“ játaði hún í viðtali við People í desember.

Í endurminningum Grassle frá árinu 2021, Bright Lights, Prairie Dust: Reflections on Life, Loss, and Love from Little House’s Ma, lýsti hún ítarlega óbeit sinni á kynferðislegum bröndurum Landons á setti og hvernig hann gerði grín að henni.

Þættirnir hlutu Emmy-verðlaun og voru sýndir í níu þáttaraðir frá 1974 til 1983.

Grassle og Langdon í hlutverkum sínum.

Alison Arngrim lék Nellie Oleson í þáttunum. Í viðtali við Womans World, einnig í desember síðastliðnum, segir Arngrim að Landon hafi verið algjör náttúrutalent og mjög viljasterkur.  Og hann var leikstjóri, framleiðandi, aðalleikari og handritshöfundur.

Arngrim tók eftir spennunni milli Grassle og Landons, sem lést úr briskrabbameini 54 ára að aldri árið 1991: „Ég sá að ef einhver annar var mjög viljasterkur eins og Landon þá kallaði það á átök.“

Grassle yfirgaf þáttaröðina í 8. þáttaröð. „Ég hafði takmarkað samskipti mín við aðdáendur mjög mikið,“ sagði hún. „Ég fór í raun ekki á marga viðburði. Ég hékk ekki með öllum. Ég einangraði mig.“

Eftir að endurminningar hennar komu út áttaði Grassle sig á áhrifum þáttarins á aðdáendurna.

„Ég verð að gefa kost á mér,“ sagði hún. „Svo ég byrjaði á samfélagsmiðlum og fór að fara á þessa viðburði. Ég var undrandi á því sem ég lærði um ástúð fólks á persónunni Caroline.“

Nú er Grassle himinlifandi að endurtaka hlutverk Caroline.

„Ég vissi ekki hversu djúpa væntumþykju fólk bar til þessarar persónu. Það fyllti hjarta mitt vegna þess að ég vann svo hart að því að gera eitthvað sérstakt úr henni og það voru margir dagar sem ég hlakkaði ekki til að fara í vinnuna.“

„Hvílík umbun! …,“ bætti Grassle við. „Ég meina, hversu margir fá svona langan tíma eftir að þeir hafa lokið verki? Ótrúlegt!“

Þáttaröð væntanleg á Netflix

Í janúar 2025 tilkynnti Netflix nýja þáttaröð byggða á bókum Lauru Ingalls Wilder, sem Húsið á sléttunni byggði sömuleiðis á. Nýja þáttaröðin mun byggja frekar á bókunum en að vera ný gerð af upphaflegu þáttunum.

Grassle í júní árið 2024

Fleiri sjá þættina í nýju ljósi

Í nóvember tjáði leikkonan Melissa Gilbert, sem lék aðalpersónuna, dótturina Lauru Ingalls, um þættina. Sagðist hún hafa fundið til ógleði vegna aldursmunar hennar og leikarans Dean Butler, sem lék kærasta hennar og síðar eiginmann í þáttunum.

Sjá einnig: Finnur fyrir „ógleði“ vegna aldursmunarins í Húsinu á sléttunni

Hluti leikarahópsins, Arngrim lengst til vinstri.

Hrósa Langdon

Arngrim gefur sér smá stund til að hugleiða líf Landons í sínu viðtali. Kallar hún Landon „einn fyndnasta mann sem ég hef kynnst“. „Munið þið að hann skrifar þáttinn, hann framleiðir hann og hann leikstýrir honum og hann er þessi orkubolti og bara vinnufíkill, svo fyndinn. Michael var skapandi hvirfilbylur. Það var alveg ótrúlegt að horfa á hann vinna, og svo var hann algjör brandarakall og gat ekki staðist grín.“

Arngrim útskýrði að brandararnir frá Landon kæmu þrátt fyrir að „heimilislíf hans“ væri ekki hamingjusamt.„Hann átti ömurlega bernsku,“ hélt hún áfram, „og hann talaði opinskátt um hversu erfiðir foreldrar hans voru. Hann var að leita að þeirri tegund af raunverulegri  fjölskyldu og raunverulegri ást og tengslum sem þátturinn var dæmi um.“

Dean Butler, sem einnig lék í þáttunum, sagði við fjölmiðla að Landon væri ekki fullkomin manneskja á nokkurn hátt. „Hann var mjög fjölbreytt manneskja, en hann skildi hvert hlutverk hans var og það var að skapa eitthvað sem margar kynslóðir gætu upplifað saman. Eitthvað sem væri grundvallaratriði hvað varðar gæði þess með fólki, gildum og siðferði. Það voru mjög fá blæbrigði og tvíræðni í því sem hann var að gera.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var við hestaheilsu þar til hann komst í tæri við orkudrykki

Var við hestaheilsu þar til hann komst í tæri við orkudrykki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Opinberar þá „grimmustu og óþægilegustu“ í hópi fræga fólksins

Opinberar þá „grimmustu og óþægilegustu“ í hópi fræga fólksins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump segir að Bandaríkin muni fara með völdin í Venesúela þar til nýr leiðtogi finnst

Trump segir að Bandaríkin muni fara með völdin í Venesúela þar til nýr leiðtogi finnst
Pressan
Fyrir 3 dögum

Maduro og eiginkona hans ákærð í New York – „Þau munu senn mæta fullum ofsa bandaríska réttlætisins“

Maduro og eiginkona hans ákærð í New York – „Þau munu senn mæta fullum ofsa bandaríska réttlætisins“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Einn hrottalegasti raðmorðingi sögunnar þurfti að vera í búri í réttarhöldum sínum – Dæmdur til dauða og ein byssukúla látin nægja

Einn hrottalegasti raðmorðingi sögunnar þurfti að vera í búri í réttarhöldum sínum – Dæmdur til dauða og ein byssukúla látin nægja
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Reiðasti“ maður Bretlands missti aftur stjórn á skapi sínu

„Reiðasti“ maður Bretlands missti aftur stjórn á skapi sínu
Pressan
Fyrir 1 viku

Hetjudáð systkina – Brugðust hárrétt við og björguðu mannslífi

Hetjudáð systkina – Brugðust hárrétt við og björguðu mannslífi
Pressan
Fyrir 1 viku

Bíræfið bankarán í Þýskalandi – Boruðu gat inn í bankahvelfinguna og tæmdu öryggishólfin

Bíræfið bankarán í Þýskalandi – Boruðu gat inn í bankahvelfinguna og tæmdu öryggishólfin