Auðkýfingurinn Elon Musk er kominn í hart við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Rétt í þessu birti hann færsu þar sem hann sagðist ætla að varpa stórri sprengju um forsetann.
„Tími til að varpa stóru sprengjunni. Donald Trump er í Epstein-skjölunum. Það er raunverulega ástæðan fyrir því að þau hafa ekki verið opinberuð. Eigðu góðan dag DJT!“
Hann bætir svo við í athugasemd: „Geymið þessa færslu fyrir framtíðina. Sannleikurinn mun koma fram í dagsljósið.“
Epstein-skjölin eru gögn sem tengjast máli ákæruvaldsins gegn athafna- og kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein sem svipti sig lífi árið 2019, áður en aðalmeðferð fór fram í máli hans. Orðrómur hefur gengið um að meðal gagna málsins sé sérstakur listi sem Epstein hélt yfir kúnna sína, fræga einstaklinga sem áttu hlutdeild í brotum á borð við mansal og barnaníði. Eitthvað af þessum gögnum hefur þegar verið birt, en mörg eru enn bundin trúnaði.
Donald Trump er byrjaður að svara fyrir sig á sínum eigin samfélagsmiðli, Truth Social.
„Elon var orðinn tæpur. Ég bað hann um að hætta, ég tók frá honum rafbílaafsláttinn sem þvingaði alla til að kaupa rafbíla sem enginn annar vildi (og hann vissi mánuðum saman að ég ætlaði mér að gera) og hann bara STURLAÐIST.“
Trump bætti svo við:
„Auðveldasta leiðin til að spara peninga í fjárlögum okkar, milljarða ofan á milljarða dollara, er að stöðva ríkisstyrki og samninga Elons. Mér kom alltaf á óvart að Biden gerði það ekki!“
Margir túlka þessi orð forsetans sem beina hótun. Þarna sé hann að segja Musk að halda sig á mottunni.
Musk hefur svarað forsetanum: „Augljós lygi. Svo sorglegt.“
Auðkýfingurinn lét af störfum fyrir ríkisstjórn Trump í síðustu viku og nú er öllum augljóst að vinskapur hans og forsetans hefur súrnað verulega. Musk hefur undanfarna daga harðlega gagnrýnt fjárlagafrumvarp Trump og kallað eftir því að frumvarpið verði fellt á þingi. Musk segir að forsetinn muni keyra Bandaríkin í þrot nái frumvarpið fram að ganga, en með því sé forsetinn að stórauka skuldir ríkissjóðs og auka útgjöld óhóflega.
Musk skrifaði líka á X í dag: „Án mín hefði Trump tapað kosningunum, demókratar væru með meirihluta í fulltrúadeildinni og repúblikanar væru með 51-49 á öldungarþinginu. Hvílíkt vanþakklæti.“
Donald Trump ræddi við blaðamenn í dag og sagðist ekki vera viss um að hann og Musk ættu lengur samleið.
„Mér hefur alltaf líkað vel við Elon. Þið sáuð hvað hann sagði um mig. Hann hefur ekkert sagt neikvætt um mig og ég vildi frekar að hann gagnrýndi mig heldur en fjárlagafrumvarpið því það er magnað. Þetta er umfangsmesti niðurskurður í sögu landsins.“
Trump sagði að Musk hafi þekkt frumvarpið betur en nokkur annað og ekki gert nokkrar athugasemdir við það fyrr en eftir að hann lét af störfum. „Ég er mjög vonsvikinn út í Elon, ég hef hjálpað Elon mikið.“
Rétt í þessu deildi Musk færslu þar sem hægrisinnaði blaðamaðurinn Ian Miles Cheong lagði til að Trump yrði sviptur embætti svo varaforsetinn JD Vance gæti tekið við. Elon Musk skrifaði með deilingunni: „Já“ og virðist því taka undir með Cheong.
Trump hefur eins hent í nýja færslu:
„Mér er alveg sama þó Elon hafi snúist gegn mér en hann hefði átt að gera það fyrir mánuðum síðan,“ skrifar forsetinn sem heldur því fram að fjárlagafrumvarp hans sé besta frumvarp sögunnar. Þar séu útgjöld skorin verulega niður samhliða rausnarlegum skattlækkunum. Fáist frumvarpið ekki samþykkt muni skattar hækka um 68 prósent og eins muni verri hlutir gerast. Trump segist ekki bera ábyrgð á stöðu ríkissjóðs en hann sé tilbúinn að bæta úr henni til að Bandaríkin megi verða frábær aftur.
Musk hefur svo deilt færslu þar sem má finna tilvitnun í ummæli Trump um Epstein frá árinu 2002. Þar sagði Trump:
„Ég hef þekkt Jeff í 15 ár. Frábær náungi. Það er gaman að vera með honum. Það er jafnvel sagt að hann kunni að meta fallegar konur jafn mikið og ég, og margar þeirra eru í yngri kantinum. Það er enginn vafi á því að Jeffrey nýtur félagslífsins.“
— Elon Musk (@elonmusk) June 5, 2025
Eins hefur Musk tjáð sig um óbeinu hótunina frá forsetanum og tekið fram að SpaceX muni hætta að leyfa NASA að nota Dragon-geimförin, sem meðal annars voru notuð til að sækja geimfarana Butch Wilmore og Suni Williams sem sátu föst mánuðum saman í alþjóðlegu geimstöðinni.
Eins fullyrðir Musk að tollastefna Trump eigi eftir að valda kreppu strax á þessu ári.
Notendur á X eru að missa sig yfir þessu rifrildi. Hörðustu stuðningsmenn Trump eru sármóðgaðir. Það séu bein svik við forsetann að tala gegn fjárlagafrumvarpinu. Aðrir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Styðja þeir Trump? Eða styðja þeir Musk. Hægriaðgerðarsinninn Laura Loomer segir að það verði áhugavert að sjá hvað þingmenn repúblikana geri núna. Styðja þeir voldugasta mann heims eða þann auðugasta?
Fréttin hefur verið uppfærð