fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

Twitter-morðinginn var hengdur í gærkvöldi

Pressan
Föstudaginn 27. júní 2025 07:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í Japan hafa tekið af lífi raðmorðingjann Takahiro Shiraishi, sem kallaður var Twitter-morðinginn í japönsku pressunni. Takahiro var sakfelldur fyrir morð á átta konum og einum karli í íbúð sinni í Zama skammt frá höfuðborginni Tókýó.

Shiraishi var hengdur í gærkvöldi en hann hlaut dauðadóminn árið 2020. Komst hann í kynni við fórnarlömb sín í gegnum samfélagsmiðilinn Twitter, sem nú heitir X, en morðin framdi hann á þriggja mánaða tímabili árið 2017.

Fórnarlömbin áttu það sameiginlegt að hafa átt við andleg veikindi að stríða og mun Takahiro hafa boðið fram aðstoð sína við að fremja sjálfsmorð.

Hann játaði morðin á sig en líkamsleifar fórnarlamba hans fundust meðal annars í kæliboxum í íbúð hans.

Dómsmálaráðherra landsins, Keisuke Suzuki, sagðist hafa heimilað aftökuna eftir að hafa skoðað gögn málsins ítarlega. Aftakan á Takahiro er sú fyrsta í Japan frá árinu 2022, en þá var karlmaður tekinn af lífi fyrir að verða sjö að bana í hnífaárás í verslunarhverfi í Tókýó árið 2008.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rolex-málið og systurnar

Rolex-málið og systurnar