fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

Pressan
Föstudaginn 27. júní 2025 07:30

Merki FBI. Mynd: EPA/MICHAEL REYNOLDS

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska alríkislögreglan er nú á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa sem eru hugsanlega í Bandaríkjunum. Er óttast að þeir láti til sín taka vegna loftárása Bandaríkjanna á þrjár íranskar kjarnorkustöðvar.

Liðsmenn hryðjuverkahópa af þessu tagi lifa í raun ósköp venjulegu lífi í Bandaríkjunum og láta lítið fyrir sér fara. En dag einn kemur kallið kannski og þá þurfa þeir að láta til skara skríða gegn Bandaríkjunum.

FBI hefur hert eftirlitið með hugsanlegum írönskum hryðjuverkamönnum og/eða njósnurum því óttast er að Íranar muni virkja þessa hópa núna.

Áður en Bandaríkin gerðu árásina á Íran, hafði Kash Pate, forstjóri FBI, bætt í aðgerðir FBI hvað varðar eftirlit með „sofandi útsendurum“ frá Hezbollah hryðjuverkasamtökunum en þau njóta stuðnings Írana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rolex-málið og systurnar

Rolex-málið og systurnar