fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Pressan

Ólétta konan var myrt – Myndin sem hún sendi breytti öllu

Pressan
Laugardaginn 14. júní 2025 22:00

Tyler og Laura. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var 4. september 2017, fyrsti skóladagurinn eftir sumarfrí í Wilde Lake High í Columbia í Maryland í Bandaríkjunum. Laura var í miklum metum hjá nemendunum og hafði hlakkað til að hitta þá á nýjan leik eftir sumarfríið.

En þegar Laura, sem elskaði starfið sitt, mætti ekki í vinnu og svaraði ekki í símann, hringdu aðvörunarbjöllur hjá öllum sem þekktu hana. Vinnufélagar og nemendur höfðu áhyggjur og töldu að eitthvað hlyti að hafa komið fyrir hana.

Bónorðið

Lögreglan fann ekkert óeðlilegt heima hjá henni. Allt virtist óhreyft. En bílinn hennar, svartur jeppi, var horfinn.

Íbúar á svæðinu fóru að leita að Laura og lögreglan í Montgomery County byrjaði að rannsaka málið.

Í ljós kom að hún hafði eytt helginni á undan með unnusta sínum, Tyler Tessier. Samband þeirra hafði verið svona sundur-saman í gegnum tíðina en nú blasti hamingjan svo sannarlega við þeim. Þau áttu von á fyrsta barni sínu, dreng sem átti að fá nafnið Reid.

Tyler og Laura á góðri stund. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

Laura skiptist á smsum við systur sína alla helgina. Systirin tók eftir að Laura virtist breytast eftir því sem leið á helgina, úr því að vera glöð yfir í að vera döpur.

Í smsi vísaði hún manns að nafni Antwan og segir að Tyler sé ekki barnsfaðir hennar. „Ég hef lifað í lygi. Ég hef ekki hjarta í mér til að segja honum þetta,“ skrifaði hún.

Tyler var fljótlega kallaður í yfirheyrslu. Hann sagði að samband hans og Laura hefði ekki alltaf verið dans á rósum. Áður en hún varð barnshafandi, hafi þau glímt við vandamál og sambandinu hafi þá lokið. Þegar Laura áttaði sig á að hún var barnshafandi, hafi Tyler fullvissað hana um að hann myndi standa við hlið hennar og að þau myndu leysa vandamálin.

Hann sagði að þau hafi farið út fyrir bæinn um helgina því hann hafi viljað kaupa fasteign í dreifbýlinu þar sem þau gætu búið saman. Hann sagðist hafa ætlað að fara á skeljarnar á laugardeginum og biðja Laura. Hann hafi þó frestað þessu því hún hafi verið með svo mikla morgunógleði.

Tyler var yfirheyrður. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

 

Hann sagðist síðan hafa beðið hennar á sunnudeginum en hún hafi ekki orðið glöð við það.

„Hún hélt á trúlofunarhringnum í höndinni, lokaði kassanum, stóð upp og fór inn á bað og læsti. Ég sagði bara: „Laura, hvað er að?“ Hún bað mig um að fara, hún sagði mér að koma mér út, hún vildi ekki tala aftur við mig,“ sagði Tyler.

Hann sagði að þau hefðu síðan ákveðið að hittast á mánudeginum, sem var fyrsti skóladagur, en Laura hafi ekki komið til að hitta hann.

Fleiri vísbendingar

Tveimur dögum eftir hvarf Laura, barst lögreglunni ábending um að ökuskírteini hennar hefði fundist í ruslagámi við fjölbýlishús í Columbia.

Þar fann lögreglan bílinn hennar. Ekkert blóð var í bílnum og engar skemmdir voru á honum. Búið var að fjarlægja númeraplötuna að framan.

Búið var að taka númeraplötuna af bíl Laura. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

 

Nú var lögreglan fullviss um að eitthvað glæpsamlegt hafi átt sér stað og að líklega hafi Laura verið myrt.

Skömmu síðar barst lögreglunni önnur ábending. Tyler átti aðra kærustu, Chrissy að nafni.

Chrissy, sem starfaði sem kennari, var tekin til yfirheyrslu og um leið var Tyler tekinn aftur til yfirheyrslu.

Þau voru yfirheyrð samtímis. Á meðan fékk lögreglumaðurinn, sem yfirheyrði Tyler, sms frá lögreglumanninum sem yfirheyrði Chrissy: „Ég er hjá Chrissy, Hún er með hring á höndinni. Þau eru trúlofuð og búa saman.“

Tyler var yfirheyrður á nýjan leik. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

 

Chrissy sagði að Laura hefði vilja læsa klónum í Tyler og sagði að Laura væri klikkuð. Nokkrum dögum áður en Laura hvarf, fékk Chrissy skilaboð á Facebook frá Laura um að hún vildi tala við hana. Chrissy sagðist hafa orðið hrædd og hafi ekki svarað skilaboðunum.

Chrissy sagði að helgina sem Laura hvarf, hafi hún verið að undirbúa sig undir brúðkaupsdaginn. Hún ætlaði að kaupa kjóla í Pennsylvania.

Lögreglumennirnir gleyptu ekki við útskýringu Tyler en skorti sönnunargögn. Þeir beindu nú sjónum sínum að honum.

Kom fram í fjölmiðlum og breytti framburði sínum

Lögreglan stóð fyrir fréttamannafundi 10. september þar sem Tyler sat fyrir svörum.

„Manstu eitthvað eftir síðustu samtölum þínum við hana?“ spurði einn fréttamaðurinn. „Ég veit ekki hvar hún er. Það er allt og sumt. Ég veit það ekki,“ svaraði Tyler og yppti öxlum.

Tyler á fréttamannafundinum. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

 

 

Eftir fréttamannafundinn var Tyler tekinn til yfirheyrslu á nýjan leik og framburður hans breyttist frá einni mínútu til annarrar.

Nú sagðist hann hafa beðið eftir Laura, á mánudeginum þegar þau ætluðu að ræða saman, en hún hafi ekki komið.

Upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýna að Tyler var ekki í verslunarmiðstöðinni þar sem þau ætluðu að hittast og hann beið klukkustundum saman að hans sögn.

Tyler kom aldrei í verslunarmiðstöðina. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

 

Eftir margra klukkustunda yfirheyrslu kom hann með nýja útgáfu. Nú sagði hann að Laura hafi beðið hann um að hjálpa sér að hefja nýtt líf með barnsföðurnum, Antwan. Þetta var í fyrsta sinn sem Tyler játaði að þekkja þetta nafn.

Laura var vinsæll kennari. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann vissi hins vegar ekki að lögreglunni hafði tekist að hafa uppi á þessum dularfulla Antwan. Hann var fyrrum unnusti Laura og var með fjarvistarsönnun þegar hún hvarf.

En lögreglan lagði ekki trúnað á þessa nýju útgáfu frá Tyler. Hún taldi að Laura hefði verið mjög náin fjölskyldu sinni og hefði elska vinnustaðinn sinn. Hún hefði aldrei tekið upp á því að yfirgefa vinnuna eða fjölskyldu sína til að hefja nýtt líf með Antawan.

Fundu grunna gröf

Lögreglan ákvað að kafa dýpra í síðustu samskipti Tyler og Laura og samskipti hennar við aðra.

Það vakti sérstaka athygli að helgina sem Laura hvarf, sendi hún systur sinni skilaboð um að Tyler hefði farið með hana út á akur og lét mynd fylgja með.

Myndin sem Laura sendi systur sinni. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

 

Tyler sagði að þau hefðu verið nærri bænum Fredrick en lögreglan trúði honum ekki. Hann starfaði í hlutastarfi hjá kjötvinnslustöð á stóru býli í Damascus, ekki langt frá bænum Fredrick.

Lögreglan fékk heimild til að leita á býlinu. Á afskekktu svæði á landareigninni fann hún svæði sem passaði við svæðið á myndinni sem Laura sendi. Einnig fundust óvenjuleg för eftir tæki þar nærri.

Rauður hringur utan um gröfina sem Laura var í. Mynd:«How I Caught My Killer» / Disney+

 

 

 

 

 

Í hlíðinni sá lögreglan smá skika sem virtist hafa verið hreyft við nýlega. Smá klæðisbútur stóð þar upp úr jarðveginum. Lík Laura fannst þar undir í grunnri gröf.

Ný útskýring

Tyler var þar með grunaður um að hafa myrt Laura. Þegar hann var yfirheyrður enn einu sinni sagði hann frá því sem hann sagðist telja vera síðustu minningu sína um Laura.

Hann sagði að þeim hefði verið rænt af þremur grímuklæddum mönnum og fluttir á býlið í Damascus. Hann sagði að mennirnir hefðu skotið Laura í hnakkann og neytt hann til að horfa á það en hafi þyrmt lífi hans.

„Ég grét eins og barn og grátbað um miskunn,“ sagði hann.

Lögreglan vissi þá þegar að Laura hafði verið skotin í hnakkann. Hún hafði næg sönnunargögn til að sviðsetja morðið, meðal annars fann hún morðvopnið, riffil sem var venjulega notaður til að aflífa dýr.

Áfall rétt áður en réttarhöldin áttu að hefjast

Lögreglan taldi að Tyler hefði myrt Laura vegna þess að hún setti sig í samband við Chrissy. Hún taldi að hann hafi óttast að upp kæmist að hann ætti í sambandi við tvær konur.

Ári eftir morðið áttu réttarhöldin yfir Tyler að hefjast.

Daginn áður var tilkynnt að Tyler væri látinn. Lögreglan telur að hann hafi tekið eigið líf þar sem hann sat í Montgomery fangelsinu.

Fjallað er um málið í þáttaröðinni „How I Caught My Killer“ sem er aðgengileg á Disney+.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Lífveran frá helvíti – Stundar kynlíf á andliti þínu og kúkar á þig á meðan þú sefur

Lífveran frá helvíti – Stundar kynlíf á andliti þínu og kúkar á þig á meðan þú sefur
Pressan
Í gær

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tekinn af lífi fyrir hryllilegan glæp árið 1994

Tekinn af lífi fyrir hryllilegan glæp árið 1994
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns