Flugfarþegi minnist þess hvernig hann varð vitni að því þegar samferðamaður hans reyndi að beygja reglurnar á flugvellinum sér í hag með óvæntri niðurstöðu.
Farþeginn segir í færslu á Reddit að hann fljúgi mikið, en í þessu tiltekna flugi hafi hann verið settur í hóp D, en farþegum er jafnan skipt í hópa og hver hópur fyrir sig kallaður út í vél þegar komið er að því að ganga um borð.
Farþeginn segir sinn hóp hafa verið kallaðan upp og hann hafi stillt sér upp í mjög langa röð þegar annar farþegi, kona, hafi ákveðið skyndilega að fara fram fyrir hann og sagt um leið: „Við erum öll að fara í sömu flugvélina, ekki satt?““.
Farþeginn segist hafa séð miðann hennar og séð að hún var í farþegahópi F, sem var „tveimur hópum á eftir mínum,“ benti hann á. „Þótt hún hefði rétt fyrir sér var ég of þreyttur til að rífast, og ég var líka að vona að hún myndi skammast sín,“ hélt hann áfram.
Loksins komust þau fremst í röðina og segist farþeginn hafa horft á konuna skanna brottfararspjaldið sitt og fengið neitun.
Hliðstarfsmaðurinn sagði við konuna: „Frú þetta er hópur D ekki hópur F,“ sem konan svaraði með sömu línu: „Við erum öll að fara í sömu flugvélina.“
Á meðan starfsmaðurinn stóð fast á sínu gerði konan það líka: „En ég er nú þegar hér við hliðið, af hverju geturðu ekki gert undantekningu?“ Konan reyndi síðan að gera farþegann sem skrifaði færsluna hluta af samtalinu og sagði við starfsmanninn: „Jæja, þessi herramaður leyfði mér að fara á undan sér.“ Þegar starfsmaðurinn spurði hann hvort hann þekkti konuna, svaraði maðurinn með einföldu nei.
Starfsmaðurinn tók síðan brottfararspjald mannsins, skannaði það og óskaði honum góðrar flugferðar. Síðan sneri starfsmaðurin sér aftur að konunni og sagði:
„Frú, þú þarft að bíða þangað til þinn hópur er kallaður upp. Ef þú hreyfir þig ekki verðum við að hringja á lögregluna.“
„Ég hló þegar ég gekk framhjá konunni,“ sagði flugfarþeginn sem skrifaði færsluna á Reddit.
Netverjar hömruðu á lyklaborðið í athugasemdakerfinu og sögðu að konan ætti að skammast sín.
„Ef „við erum öll að fara í sömu flugvélina og það skiptir ekki máli“ þá er ekkert mál bíða bara og fara um borð með hópnum þínum, ekki satt???“ skrifaði einn karlmaður.
Annar benti á að það er ástæða fyrir reglunum þegar kemur að því að ganga um borð.
„Hópurinn, þó þú eigir tiltekið sæti, skiptir miklu máli, þar sem það ákvarðar hvar þú færð pláss fyrir handfarangurinn. Ef ég er ekki með handfarangur er mér alveg sama hvenær ég er kallaður um borð.“
Aðrir veltu því fyrir sér hvers vegna konan væri að flýta sér svona mikið að komast um borð í flugvélina, þar sem þeir vilja helst eyða sem minnstum tíma í flugvélinni.
„Kallaðu mig skrítinn, ég lít ekki á það sem sigur að þurfa að eyða tíu mínútum til viðbótar í flugvélinni,“ skrifaði einn og annar sem bætti við: „Fyrir utan plássið í handfarangrinum, skil ég ekki asann við að sitja kyrr tímunum saman.“
Sum flugfélög eru farin að kynna nýjar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að farþegar troði sér fram fyrir röðina. Í október 2024 sagði American Airlines að þeir væru að prófa nýja tækni sem myndi senda frá sér hljóðmerki til að gera starfsmönnum viðvart þegar farþegar reyna að fara um borð áður en þeirra hópur er kallaður til.
„Við erum á byrjunarstigi að prófa nýja tækni sem notuð er á meðan farið er um borð. Nýja tæknin er hönnuð til að tryggja að viðskiptavinir fái ávinninginn af forgangi um borð á auðveldan hátt og hjálpar til við að bæta upplifunina um borð með því að veita teyminu okkar meiri sýn á framfarir um borð.“