fbpx
Laugardagur 17.janúar 2026
Pressan

Vildi minnka álagið á kvöldvöktunum og gerðist raðmorðingi

Pressan
Fimmtudaginn 6. nóvember 2025 08:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýskur hjúkrunarfræðingur hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi eftir að hafa verið fundinn sekur um að drepa tíu sjúklinga sína og reyna að drepa 27 til viðbótar.

Saksóknarar sögðu hjúkrunarfræðinginn hafa gert þetta til að minnka álagið á kvöldvöktum sem hann vann.

Dómstóll í Aachen kvað dóminn upp í gær og þarf hinn seki, sem ekki er nefndur á nafn í þýskum fjölmiðlum, að sitja inni í minnst fimmtán ár þar til hann getur sótt um reynslulausn.

Atvikin sem um ræðir áttu sér stað á sjúkrahúsi í Wuerselen í vesturhluta Þýskalands á tímabilinu frá desember 2023 til maí 2024. Hjúkrunarfræðingurinn er sagður hafa gefið sjúklingum sínum, sem voru aðallega aldraðir, banvæna skammta af morfíni og hinu róandi lyfi midazolam.

Saksóknarar lýstu hjúkrunarfræðingnum sem samviskulausum og áhugalausum, og bentu á að hann hefði ekki sýnt neina iðrun á meðan á réttarhöldunum stóð. Hann var greindur með persónuleikaröskun en þó talinn sakhæfur.

Kom fram fyrir dómi að hann hefði reglulega orðið pirraður í vinnu þegar honum voru úthlutaðir sjúklingar sem þurftu meiri umönnun en aðrir.

Hann hafði starfað á sjúkrahúsinu í Würselen frá árinu 2020, en í fréttum þýskra fjölmiðla kemur fram að yfirvöld hafi látið grafa upp lík til að kanna hvort fleiri fórnarlömb kunni að vera til staðar. Hugsanlega verði fleiri ákærur gefnar út.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Starfsmaður Ford móðgaði Trump og gæti misst vinnuna – Síðan þá hafa magnaðir hlutir gerst

Starfsmaður Ford móðgaði Trump og gæti misst vinnuna – Síðan þá hafa magnaðir hlutir gerst
Pressan
Í gær

Vegna veikinda neyddist móðir til að senda son sinn til föður hans og stjúpmóður – Hún mun sjá eftir því alla ævi

Vegna veikinda neyddist móðir til að senda son sinn til föður hans og stjúpmóður – Hún mun sjá eftir því alla ævi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svona oft áttu að skipta um viskastykki og borðtusku

Svona oft áttu að skipta um viskastykki og borðtusku
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hjónin myrt rétt fyrir áramót: Það kom fáum á óvart hver hinn grunaði er

Hjónin myrt rétt fyrir áramót: Það kom fáum á óvart hver hinn grunaði er
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hundur réðst á móður – „Fóturinn hékk á bláþræði“

Hundur réðst á móður – „Fóturinn hékk á bláþræði“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Enginn vill kaupa höllina í Hamptons — aftur

Enginn vill kaupa höllina í Hamptons — aftur