Maður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Kanada fyrir að stela ljósmynd en lögmaður hans segir dóminn óvenju harðan. Mögulega hefur það eitthvað haft að gera með lengd dómsins að um fræga ljósmynd af hinum goðsagnakennda Winston Churchill var að ræða.
Myndin er ein sú frægasta sem tekin var af þessum leiðtoga Breta í seinni heimsstyrjöldinni og ber heitið Öskrandi ljónið (e. The Roaring Lion) og var tekin í desember 1941 í kanadíska þinghúsinu í Ottawa, höfuðborg Kanada, af ljósmyndaranum Yousuf Karsh.
Í umfjöllun BBC kemur fram að frummyndin hafi hangið uppi á hóteli í Ottawa, Château Laurier, þegar maðurinn, Jeffrey Wood, stal henni.
Þjófnaðurinn átti sér stað einhvern tímann á milli jólanna 2021 og fyrstu daga janúarmánaðar 2022. Wood játaði á sig þjófnaðinn en einnig fölsun en það var ekki fyrr en í ágúst 2022 að starfsmaður á hótelinu fattaði að frummyndinni hefði verið skipt út fyrir falsað eintak.
Frummyndin fannst loks í fórum manns í Genoa á Ítalíu en hann hafði keypt myndina af Wood og grunaði ekki að hún væri stolin.
Wood sagðist hafa stolið myndinni og selt hana til að afla fjár fyrir bróður sinn sem glímdi við geðræn veikindi.
Dómarinn í málinu sagði það snúast um þjóðarstolt að ljósmynd eftir kanadískan ljósmyndara hefði öðlast jafn mikla frægð og Öskrandi ljónið. Yousuf Karsh var fæddur í Armeníu en kom sem flóttamaður til Kanada árið 1923, þegar hann var 15 ára, settist þar að og helgaði sig loks ljósmyndun en eftir að hann tók umrædda mynd af Winston Churchill öðlaðist hann frægð og fékk tækifæri til að taka myndir af fleiri stjórnmálaleiðtogum.
Dómarinn bætti því enn fremur við að í kanadísku þjóðfélagi ríkti almennt traust í garð almennings þegar kæmi að því að hafa muni eins og Öskrandi ljónið til sýnis þar sem mikilvægt væri að allir íbúar Kanada hefðu aðgang að þeim. Að stela, skemma og og selja slíka muni væri alvarlegt brot á þessu trausti.
Wood var eins og áður segir dæmdur í tveggja ára fangelsi. Lögmaður hans sagði dóminn óvenju harðan í ljósi þess að þetta hefði verið hans fyrsta brot.
Hvort dómurinn hefur eitthvað með það að gera af hverjum myndin er og sögulegt gildi hennar er hins vegar óljóst.