fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Pressan

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið

Pressan
Fimmtudaginn 29. maí 2025 12:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Almennt hefur í gegnum tíðina verið litið svo á að uppruna vinsælustu íþróttar í heimi, fótbolta sem einnig hefur á íslensku verið kölluð knattspyrna, í því formi sem þekkist í dag megi rekja til Englands. Þegar þeirri spurningu er slegið upp í leitarvélinni Google hvað land hafi fundið fótboltann upp þá er svarið sem kemur England. Nýlegur fornleifafundur gefur hins vegar til kynna að málið sé ekki svona einfalt og fullyrt hefur verið að þessi fundur þýði að annað land geti gert tilkall til þess að vera fæðingarstaður fótboltans. Það er þó alls ekki langt frá Englandi enda er þar um að ræða Skotland.

Fjallað er um málið í tímariti Smitsonian-stofnunarinnar í Bandaríkjunum.

Nýlega fundust í fornleifarannsókn í Skotlandi leifar af fótboltavelli frá 17.öld. Fornleifafræðingar og aðrir fræðimenn sem komu að þessari uppgötvun segja þetta einfaldlega sanna að fótboltinn eins og hann þekkist í dag sé uppruninn frá Skotlandi en ekki Englandi.

Leitin að vellinum hófst eftir að bréf frá presti að nafni Samuel Rutherford fannst en hann var prestur í bænum Anworth, í suðvesturhluta Skotlands, á árunum 1627-1638.

Í bréfinu lýsir hann því að spilaður hafi verið „fót-bolti“ á grasbala við nálægan sveitabæ á sunnudögum. Presturinn fyrirskipaði síðan safnaðarmeðlimum að setja grjót á völlinn til að koma í veg fyrir að fólk væri að stunda þetta.

Steinarnir

Hópur fornleifafræðinga og annarra áhugasamra fór að leita að steinunum og fann þá loks. Þeir voru stórir, alls 14 og stillt upp á flötu svæði. Steinarnir virtust ekki hafa neinn tilgang fyrir landbúnað og jarðvegssýni gáfu til kynna að þeim hefði verið stillt þarna upp fyrir 400 árum alveg eins og bréf prestsins gaf til kynna.

Fræðimennirnir segja að ef spilað hafi verið á vellinum á hverjum sunnudegi gefi það til kynna að einhverjar reglur hafi gilt í leiknum og ekki hafi verið spiluð frumstæð útgáfa af fótbolta en knattleikur með fótum, án reglanna sem þekkjast í dag, á sér sögu allt aftur til miðalda.

Ged O´Brien sem kom að fundinum og stofnaði safn um sögu skosks fótbolta segir fundinn sanna að á vellinum hafi verið leikinn leikur sem líta megi á sem forföður fótboltans eins og hann þekkist í dag.

Nútíminn

Englendingar sem koma að stofnunum sem halda utan um sögu fótboltans eru þó ekki alveg tilbúnir til að samþykkja það og segja leikinn sem minnst er á í bréfi prestsins ekki endilega hafa tengsl við fótbolta nútímans.

Talið er að fótbolti nútímans hafi þróast út frá knattleik sem eins og áður segir þekkt er að var stundaður á miðöldum. Nánast engar reglur giltu í þessum leik.

Á 19. öld var hinsvegar ákveðið að búa til reglur og fótbolti eins og hann þekkist í dag varð til. Fyrstu reglurnar voru settar af fyrsta knattspyrnusambandi veraldar sem var stofnað á Englandi 1863. Vegna þess er yfirleitt sagt að Englendingar hafi fundið nútíma fótbolta upp.

Áðurnefndur O´Brien segir hins vegar bréfið og grasvöllinn staðfesta að fótbolti eins og hann þekkist í dag hafi verið spilaður 200 árum fyrr í Skotlandi.

Hvort þetta þýði að saga fótboltans verði skrifuð upp á nýtt á hins vegar eftir að koma í ljós.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Taívan vill friðsamlega sambúð við Kína en verður að undirbúa sig undir stríð segir forsetinn

Taívan vill friðsamlega sambúð við Kína en verður að undirbúa sig undir stríð segir forsetinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harvard sviptir starfsmann æviráðningu – Rannsakaði siðferðislega hegðun en var rekin fyrir ósiðferðislega hegðun

Harvard sviptir starfsmann æviráðningu – Rannsakaði siðferðislega hegðun en var rekin fyrir ósiðferðislega hegðun
Pressan
Fyrir 3 dögum

Útlendingastofnun svarar fyrir gagnrýni á mál Oscars – „Hann á foreldra í heimalandi“

Útlendingastofnun svarar fyrir gagnrýni á mál Oscars – „Hann á foreldra í heimalandi“
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Flugvél full af enskum dýrum“ – Farþegi lýsir hryllingsflugi til sólarstrandar

„Flugvél full af enskum dýrum“ – Farþegi lýsir hryllingsflugi til sólarstrandar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vísindamaður með stórtíðindi – Það eru til skjöl sem sanna að geimverur hafa drepið fólk

Vísindamaður með stórtíðindi – Það eru til skjöl sem sanna að geimverur hafa drepið fólk