fbpx
Miðvikudagur 21.maí 2025
Pressan

Reiddist mjög þegar hún sá eiginmanninn horfa á klám – Skar undan honum og eldaði liminn í baunakássu

Pressan
Miðvikudaginn 21. maí 2025 03:10

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brasilísk kona er grunuð um að hafa skorið getnaðarliminn af eiginmanni sínum og að hafa síðan eldað liminn í baunakássu eftir að hafa banað eiginmanninum.

Konan, sem er frá Acrelandia í vesturhluta Brasilíu, er sögð hafa sett hluta af getnaðarlimnum út í kássuna áður en hún borðaði hana. Skömmu áður hafði hún banað eiginmanninum eftir að hún stóð hann að því að horfa á klám.

Maðurinn var 37 ára en lögreglan hefur ekki veitt neinar upplýsingar um eiginkonuna.

Daily Mail segir að lögreglan telji að afbrýðissemi og reiði hafi valdið því að konan greip til þessara óyndisráða.

Lögreglan er sögð hafa fundið lík mannsins, þó án getnaðarlimsins, nærri heimili hjónanna eftir að ættingjar hans tilkynntu um hvarf hans.

Konan er sögð hafa viðurkennt morðið þegar hún var yfirheyrð.

Ekki liggur fyrir hvort fleiri en hún borðuðu baunakássuna með getnaðarlimnum í.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniskjöl frá CIA afhjúpa að þriðja heimsstyrjöldin hafi nærri hafist af völdum fljúgandi furðuhluta

Leyniskjöl frá CIA afhjúpa að þriðja heimsstyrjöldin hafi nærri hafist af völdum fljúgandi furðuhluta
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vildi fá gluggasætið í 11 klukkustunda flugferð – Svar konunnar er frábært

Vildi fá gluggasætið í 11 klukkustunda flugferð – Svar konunnar er frábært
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hryllingshúsið í Gloucester“ var vettvangur hroðalegra myrkraverka West-hjónanna

„Hryllingshúsið í Gloucester“ var vettvangur hroðalegra myrkraverka West-hjónanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vísindamenn vara við – Getur valdið ótímabærum dauða

Vísindamenn vara við – Getur valdið ótímabærum dauða
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gervisætuefni hafa áður óþekkt áhrif á heilann

Gervisætuefni hafa áður óþekkt áhrif á heilann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kona kveikti í vini sínum út af karlrembubrandara – Sagði henni að halda sig í eldhúsinu og var í kjölfarið haldið sofandi í 8 daga á gjörgæslu

Kona kveikti í vini sínum út af karlrembubrandara – Sagði henni að halda sig í eldhúsinu og var í kjölfarið haldið sofandi í 8 daga á gjörgæslu