fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“

Pressan
Föstudaginn 27. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseta var klárlega nokkuð skemmt þegar framkvæmdastjóri NATO, Mark Rutte, kallaði hann pabba, eða „daddy“, á dögunum.

Málið vakti svo mikla athygli að Rutte hefur nú komið því sérstaklega á framfæri að hann hafi ekki persónulega kallað forsetann pabba heldur hafi verið um myndlíkingu að ræða. Ummælin féllu þegar Rutte var að koma með myndlíkingu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Hann líkti þar Íran og Ísrael við óþekka skólakrakka sem hafi svo fengið að heyra það frá „pabba“ sínum, Donald Trump, þegar forsetinn kom á vopnahlé.

Rutte gekk þó ekki áfallalaust að koma þessu með myndlíkinguna á framfæri við blaðamenn þegar hann útskýrði ummælin.

„Þetta pabba-dæmi, ég kallaði hann ekki pabba. Það sem ég sagði er að stundum, í Evrópu, heyri ég aðildarríki spyrja: „Hey Mark, munu Bandaríkin áfram standa með okkur?“ og ég sagði að það hljómaði svolítið eins og lítið barn sem spyr pabba sinn: „Hey, ætlarðu að vera áfram með okkur fjölskyldunni?“ svo í því samhengi sagði ég pabbi – það var ekki svo að ég hafi kallað Trump pabba.“

Trump hins vegar ELSKAR þetta nýja gælunafn. Hann var sjálfur spurður um nýja gælunafnið sem Rutte gaf honum og svaraði glaður: „Hann gerði þetta af mikilli hlýju: „Pabbi, þú ert pabbi minn,“ sagði Trump við blaðamenn á meðan utanríkisráðherra hans, Marco Rubio, flissaði.

Málinu er svo ekki lokið því Trump er svo hrifinn af því að vera kallaður pabbi að hann virðist ætla að nota það sem nýtt slagorð. Stjórnarráð Bandaríkjanna, Hvíta húsið, hefur birt nokkrar færslur á samfélagsmiðlum þar sem Trump er kallaður pabbi Bandaríkjanna.

„Ameríka er snúin aftur, pabbi er kominn heim.“

Hvíta húsið birti einnig myndband þar sem sýnt er frá ferðalagi Trump til Hollands þar sem hann mætti á leiðtogafund NATO. Þar má heyra sungið – Pabbi er kominn heim, hey, hey, hey pabbi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Æðstiklerkurinn rýfur þögnina – Lýsir yfir sigri gegn Ísrael og sakar Trump um að ýkja árangur árása Bandríkjanna

Æðstiklerkurinn rýfur þögnina – Lýsir yfir sigri gegn Ísrael og sakar Trump um að ýkja árangur árása Bandríkjanna
Pressan
Í gær

Hefur heimsótt allar höfuðborgir Evrópu – Segir að þessar þrjár séu stórlega ofmetnar

Hefur heimsótt allar höfuðborgir Evrópu – Segir að þessar þrjár séu stórlega ofmetnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýr risastjörnusjónauki uppgötvaði 2.104 nýja loftsteina í sólkerfinu á 10 klukkustundum

Nýr risastjörnusjónauki uppgötvaði 2.104 nýja loftsteina í sólkerfinu á 10 klukkustundum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karoline Leavitt fékk að heyra það eftir galna fullyrðingu um Trump

Karoline Leavitt fékk að heyra það eftir galna fullyrðingu um Trump
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný lög í Texas kveða á um að Boðorðin tíu verði að vera sýnileg í öllum skólastofum

Ný lög í Texas kveða á um að Boðorðin tíu verði að vera sýnileg í öllum skólastofum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgáta við strendur Mallorca – Ferðamenn fundu lík sem voru hlekkjuð á höndum og fótum

Ráðgáta við strendur Mallorca – Ferðamenn fundu lík sem voru hlekkjuð á höndum og fótum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanlegt mál skekur Þýskaland – White Tiger í haldi

Óhugnanlegt mál skekur Þýskaland – White Tiger í haldi