fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Pressan

Hún elskaði þá, myrti og hirti tryggingaféð – Saga Svörtu ekkjunnar sem var þó ekki alslæm

Pressan
Sunnudaginn 15. júní 2025 12:00

James E. Goodyear, Bobby Joe Morris, Michael Goodyear og John Gentry.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Judy Buenoano, sem var kölluð „Svarta ekkjan“, var tekin af lífi 30. mars 1998.

Árið 1971, eftir herskyldu í Suður-Víetnam, fór flughersforinginn James Goodyear að finna fyrir ógleði stuttu eftir að hann sneri aftur til síns heima til Orlando í Flórída. Þann 13. september sama ár, eftir uppköst vegna magaverkja, fór hann á sjúkrahús sjóhersins. 

Ástand hans versnaði og þremur dögum síðar lést hann úr hjarta- og æðasjúkdómi og nýrnabilun. 28 ára gömul eiginkona hans, Judy, og þriggja barna móðir, varð ekkja.

Judy, sem síðar breytti eftirnafni sínu í Buenoano, settist að  í Colorado árið 1977 með kærasta sínum Bobby Joe Morris. En skömmu síðar fór Morris að sýna sömu einkenni og Goodyear og lést Morris árið eftir, 28. janúar 1978.

Judy Buenoano

Annar harmleikur fylgdi fljótlega í kjölfarið: Michael, hálflamaður sonur Buenoano, drukknaði 13. maí 1980 eftir að kanó sem þau voru í hvolfdi í Flórída. Buenoano fann fljótt huggun í örmum kaupsýslumannsins Johns Gentry. Heilsa Gentry fór þó fljótlega að versna og hann var lagður inn á sjúkrahús tímabundið vegna ógleði og uppkasta. Hann lenti aftur á sjúkrahúsi árið 1983 eftir að sprengja, sem komið var fyrir í bíl hans, sprakk fyrir utan veitingastað í Pensacola.

Það atvik leiddi til rannsóknar á Buenoano og yfirvöld uppgötvuðu fljótlega að hún hafði áður reynt að eitra fyrir Gentry með sótthreinsandi efninu paraformaldehýði til að fá 500 þúsund dala líftryggingu hans greidda úr.

Málið vakti athygli fleiri yfirvalda á þessum undarlegu dauðsföllum sem tengdust Buenoano og greiðslunum sem hún fékk eftir andlát þeirra. Hún innheimti um 28 þúsund dali úr líftryggingu og meira en 80 þúsund dali frá sjóði Goodyear árið 1971, sem og 77 þúsund dali  í tryggingarfé eftir andlát Morris og meira en 100 þúsun dali eftir eftir andlát Michaels árið 1980.

Yfirvöld grófu upp lík Goodyear árið 1984 og uppgötvuðu að hann hafði látist af völdum banvæns magns af arsenik-eitri. Yfirvöld komust einnig að þeirri niðurstöðu að eitrað hefði verið fyrir Morris og Michael, að hann hefði verið ýtt út úr kanóinu. Þegar mál Buenoano varð víða þekkt var hún kölluð „Svarta ekkjan“ í fjölmiðlum.

Buenoano var dæmd í 12 ára fangelsi fyrir tilraun til morðs á Gentry árið 1984. Sama ár fékk hún lífstíðardóm fyrir morðið á Michael, samkvæmt CBS News.

Árið 1985 var Buenoano dæmd til dauða fyrir morð af ásetningi á Goodyear.

James E. Goodyear, Bobby Joe Morris, Michael Goodyear og John Gentry.

Þann 30. mars 1998 var 54 ára gamla amman, sem á einum tímapunkti átti snyrtistofu, tekin af lífi í rafmagnsstólnum og varð hún fyrsta konan sem var tekin af lífi í Flórída síðan 1848, samkvæmt CBS News.

Alex Hawkins, barnabarn Buenoano, sagði við People að Buenoano hafi verið brennd og ösku hennar hafi verið dreift í Blue Ridge-fjöllum. Aska hennar sem eftir var var geymd í keri og grafin undir gardeníurunna á heimili hans.

„Þegar hún var jarðsett áttum við tilbúið hús á lóðinni,“ segir Hawkins. „Og svo kom fellibylurinn Ivan og eftir hann endurbyggðum við húsið okkar. Og þegar við endurbyggðum, var nákvæmlega staðurinn þar sem ker ömmu var rétt undir svefnherberginu mínu. Ég var með ömmu mína og amma var alltaf að horfa. Hún var í raun undir mér.“

Hawkins, sem er 23 ára, vinnur nú að heimildarmynd um mál ömmu sinnar og vill að fólk haldi opnu hugarfari gagnvart lífi hennar og glæpum.

„Ég er ekki að reyna að sykurhúða þessa heimildarmynd. Ég er ekki að reyna að segja að hún hafi ekki gert alla þessa hluti. Hún gerði alla þessa hræðilegu hluti, en á sama tíma hjálpaði hún líka samfélaginu í heild sinni í Pensacola. Allir þekktu hana í samfélaginu sem þessa góðu samfélagskonu. Ég vil bara að fólk viti að já, hún gerði það sem hún gerði, en á sama tíma, líti ekki bara á hana sem morðingja, heldur líti á hana og fólkið sem hefur orðið fyrir beinum áhrifum vegna hennar.“

Sonurinn Michael Goodyear, eiginmaðurinn James E. Goodyear, og Judy.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því
Pressan
Í gær

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur enduðu með ósköpum – „Þú og fjölskylda þín hafið tvær vikur til að flytja“

Nágrannaerjur enduðu með ósköpum – „Þú og fjölskylda þín hafið tvær vikur til að flytja“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Afi hennar og amma tóku hana að sér og ólu upp – Svona launaði hún þeim góðmennskuna

Afi hennar og amma tóku hana að sér og ólu upp – Svona launaði hún þeim góðmennskuna