fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Pressan

Er þögn góð fyrir þig?

Pressan
Laugardaginn 14. júní 2025 13:30

Þögn er stundum gulls ígildi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar um þögn og áhrif hennar á heilann, þá byrjar heilinn að breytast bæði hvað varðar uppbyggingu og virkni eftir aðeins þriggja daga meðvitaða þögn. Það er hægt að líkja þessum breytingum við hugleiðslumánuði eða mánuði með hugrænni þjálfun.

Ein óvæntasta niðurstaðan snýst um það svæði heilans sem sér um minnið. Vísindamennirnir uppgötvuðu að eftir þriggja daga þögn jókst framleiðni nýrra heilafruma á svæðinu. Áður var talið að það þyrfti langvarandi þjálfun til að þetta gerðist.

Áhrifin voru enn meiri hjá fólki, sem þarf oft að þola hávaða, sem bendir til að þeir sem búa við mesta hávaðann og verða stressaðir af hans völdum, geti fengið mest út úr þögn. ABC News skýrir frá þessu.

Þögn hefur einnig áhrif á heilabylgjur og skiptir úr hröðum beta-bylgjum yfir í hægari alpha- og theta-bylgjur, sem tengjast ró, einbeitingu og sköpunargleði. Strax á þriðja degi náðu þátttakendurnir þessu stigi fyrr en áður.

Hvað varðar tilfinningar, þá voru áhrifin einnig töluverð eftir nokkurra daga þögn, voru samskipti tilfinningasvæða heilans mun áhrifaríkari sem gerði þátttakendurna betri í að uppgötva snemmbúin merki um tilfinningalegt álag og þeir brugðust skýrar við.

Þögn getur einnig bætt virkni skynfæranna. Þátttakendurnir sýndu merki um bætta sjón, bragð-, lyktar- og tilfinningaskyn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman
Pressan
Í gær

Arkitektinn hefndi sín grimmilega eftir að hann missti fjölskyldu sína í flugslysi

Arkitektinn hefndi sín grimmilega eftir að hann missti fjölskyldu sína í flugslysi
Pressan
Í gær

Hvítir flóttamenn frá Suður-Afríku sagðir svekktir eftir móttökurnar í Bandaríkjunum

Hvítir flóttamenn frá Suður-Afríku sagðir svekktir eftir móttökurnar í Bandaríkjunum
Pressan
Í gær

Íbúar Tehran forviða og skelfingu lostnir eftir árásir Ísrael í nótt – „Ég bara hélt að það myndi aldrei gerast“

Íbúar Tehran forviða og skelfingu lostnir eftir árásir Ísrael í nótt – „Ég bara hélt að það myndi aldrei gerast“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn í Austurríki: Myrti nágranna sinn og lagði áherslu á að einhver hugsaði um köttinn hans

Harmleikurinn í Austurríki: Myrti nágranna sinn og lagði áherslu á að einhver hugsaði um köttinn hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hann var nýfæddur þegar ókunnug kona rændi honum árið 1980 – Svona gæti hann litið út í dag

Hann var nýfæddur þegar ókunnug kona rændi honum árið 1980 – Svona gæti hann litið út í dag
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns
Pressan
Fyrir 3 dögum

Til mikils að vinna fyrir þann sem veitir upplýsingar um þessa bræður

Til mikils að vinna fyrir þann sem veitir upplýsingar um þessa bræður