Lögin gera það að verkum að klámsíður verða skyldaðar til að grípa til aukinna ráðstafana til að tryggja að notendur séu 18 ára eða eldri. Munu notendur nú þurfa að skrá sig inn með skilríkjum.
Vegna þessa og í mótmælaskyni hefur móðurfyrirtæki fyrrnefndra klámsíðna, kanadíska fyrirtækið Aylo, ákveðið að hætta starfsemi í Frakklandi.
„Ég get staðfest að Aylo hefur tekið þá erfiðu ákvörðun að loka fyrir aðgang í Frakklandi. Við munum nýta okkur þennan vettvang á morgun til að ávarpa franskan almenning beint,“ sagði talsmaður Aylo í samtali við breska blaðið The Guardian í gær.
Aylo óttast að lagabreytingin geti stefnt friðhelgi notenda sinna í hættu. Lögin gera þó ráð fyrir að vefsíður verði skyldaðar til að búa þannig um hnútana að ekki verði hægt að sjá persónuupplýsingar notenda. Aylo telur samt sem áður að gögn geti verið í hættu, til dæmis gagnvart spilliforritum eða netárásum og þessum gögnum verði mögulega lekið.
Alex Kekesi, sem gegnir framkvæmdastjórastöðu hjá Aylo, segir að fyrirtækið sé fylgjandi því að tekið verði fastar á því að ungmenni undir 18 ára geti ekki nálgast efnið. Hún efast þó um að þetta sé rétta aðferðin og bendir á að Google, Apple og Microsoft hafi þann möguleika í stýrikerfum sínum að staðfesta aldur notenda. Það væri betri lausn og koma í veg fyrir að notendur þurfi að deila viðkvæmum upplýsingum með fjölmörgum vefsvæðum.
Aurore Bergé, menningarmálaráðherra Frakklands, sagði á samfélagsmiðlinum X að henni væri hreinlega alveg sama þó Pornhub og aðrar klámsíður undir hatti Aylo loki í Frakklandi. „Það mun draga úr ofbeldisfullu, niðurlægjandi og niðrandi efni sem börn í Frakklandi hafa aðgang að. Ef Aylo kýs að yfirgefa Frakkland frekar en að fylgja okkur lögum þá er fyrirtækinu frjálst að gera það.“