fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Pressan

Ævintýralegt líf hjónanna sem Rússar gera dauðaleit að

Pressan
Þriðjudaginn 3. júní 2025 17:30

Artem Timofeev og Ekaterina Timofeeva ásamt ónefndum hundi. Skjáskot/Youtube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússar gera nú mikla leit að úkraínskum hjónum, karli og konu, sem þeir segja að eigi þátt í hinni miklu árás sem Úkraníumönnum tókst að gera á flugflota rússneska hersins um helgina með þeim afleiðingum að nokkur fjöldi flugvéla, sem sumar hverjar geta borið kjarnorkuvopn, eyðilögðust. Óhætt er að segja að hjónin hafi lifað nokkuð ævintýralegu lífi.

New York Post fjallar um hjónin. Eiginmaðurinn heitir Artem Timofeev og er 37 ára gamall en hann starfaði áður sem plötusnúður. Rússar fullyrða að hluti þeirra flutningabíla sem notaðir voru til að aka drónum með sprengjum að flugvélunum, þar sem þær stóðu á herflugvöllum, hafi verið í eigu fyrirtækis Timofeev.

Fullyrt er sömuleiðis í rússneskum fjölmiðlum að 34 ára gömul eiginkona hans, Ekaterina Timofeeva sem iðulega er kölluð Katya, hafi aðstoðað eiginmann sinn við hans hlut í hinni leynilegu aðgerð Úkraínumanna. Katya er raunar rithöfundur en hennar sérgrein eru erótískar skáldsögur.

Katya er sögð hafa verið afar virk á samfélagsmiðlum en Rússar segja að ekkert hafi orðið vart við hana í netheimum síðustu tvær vikur og hún hafi nú eytt öllum innleggjum sínum á samfélagsmiðlum.

Bjuggu í Rússlandi

Hjónin eru að sögn úkraínsk og uppalin þar í landi en höfðu flutt til Rússlands en það liggur ekki fyrir hvenær það nákvæmlega var. Þau munu hafa búið í íbúð í borginni Chelyabinsk í suðurhluta Úralfjalla en árásin á flugflota Rússa var framin á herflugvöllum í Irkutsk, sem er töluvert austar en Chelyabinsk, skammt norðan við Mongólíu. Ljóst er því að um langan veg var að fara fyrir flutningabílana sem báru drónana með sprengjunum.

Síðast sást til Artem Timofeev í íbúð hjónanna fyrir viku síðan. Hann mun hafa stofnað flutningafyrirtæki sitt í desember síðastliðnum. Hvort það var sérstaklega stofnað vegna árásarinnar er óljóst.

Hann hafði selt föt og starfað sem plötusnúður í Kiyv, höfuðborg Úkraínu, áður en þau hjónin fluttu til Rússlands.

Hvort þau hjónin séu starfsmenn úkraínsku leyniþjónustunnar, sem stóð fyrir árásinni, eða hvort þau voru sérstaklega fengin til að vinna að henni liggur ekki fyrir.

Árásin sem hefur þótt djarfleg í meira lagi fór þannig fram að flutningabílum var ekið inn á fimm  flugvelli. Á þökum þeirra voru faldir drónar sem vörpuðu sprengjum á herflugvélar sem stóðu á flugvöllunum. Alls var um 117 dróna að ræða að sögn Úkraínumanna.

Árásin hefur verið kölluð Pearl Harbor Rússlands og kom þarlendum yfirvöldum algerlega í opna skjöldu. Um þriðjungur flota Rússa af TU-95 sprengjuflugvélum, sem geta borið kjarnorkuvopn, eyðilagðist og sömuleiðis 41 venjuleg herfugvél.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Á bíllinn að vera í D eða N þegar beðið er á rauðu ljósi?

Á bíllinn að vera í D eða N þegar beðið er á rauðu ljósi?
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín
Pressan
Í gær

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Í gær

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sjötug amma var á barmi þess að fara á eftirlaun þegar ógæfumaðurinn birtist skyndilega

Sjötug amma var á barmi þess að fara á eftirlaun þegar ógæfumaðurinn birtist skyndilega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Myrti 5 mánaða stjúpson sinn í skapofsakasti – „Ég fæ aldrei að sjá hann taka fyrstu skrefin,“ segir móðirin

Myrti 5 mánaða stjúpson sinn í skapofsakasti – „Ég fæ aldrei að sjá hann taka fyrstu skrefin,“ segir móðirin