fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
Pressan

Fékk áfall þegar hún sá hvað eins árs sonur hennar var að borða – „Þegar sonur þinn borðar pabba þinn“

Pressan
Fimmtudaginn 3. apríl 2025 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir ein í Lincoln á Englandi viðurkennir að hún hafi fengið vægt áfall þegar hún kom að eins árs syni sínum og sá hvað hann var að gera.

Sá stutti hafði komist í duftker sem innihélt ösku látins afa hans og var hann að leika sér með hana þegar móðir hans, Natasha Emery, kom að honum.

Natasha reif upp símann þegar hún kom að syni sínum og birti hún myndband af atvikinu á TikTok. Yfirskrift myndbandsins hefur fengið einhverja til að brosa út í annað: „Þegar sonur þinn borðar pabba þinn.“

Natasha hafði brugðið sér frá í eitt augnablik til að setja í þvottavélina og er óhætt að segja að snáðinn, Koah, hafi nýtt tímann til hins ýtrasta.

Duftkerfið var uppi á hillu og virðist Koah hafa beitt einhverri áður óþekktri útsjónarsemi til að teygja sig í kerið. Askan var vitanlega komin út um allt; á gólfið, í sófann, í fötin hans og eitthvað rataði upp í munninn á honum.

Natasha segir að því miður hafi Koah aldrei hitt afa sinn og segir að hann hafi verið mikill húmoristi. Honum hefði vafalítið þótt gjörningur barnabarnsins bráðfyndinn ef hann væri á lífi.

Myndbandið hefur fengið gríðarlega mikið áhorf á TikTok en það má sjá hér að neðan.

@palominolil #omg ♬ original sound – Tashjade

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Það eru fleiri bakteríur á vettlingunum þínum en klósettsetu

Það eru fleiri bakteríur á vettlingunum þínum en klósettsetu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór á stefnumót – Við tók áralangur hryllingur – Að lokum kom óhugnanlegur sannleikurinn í ljós

Fór á stefnumót – Við tók áralangur hryllingur – Að lokum kom óhugnanlegur sannleikurinn í ljós
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gafst upp á hrotum kærastans og skaut hann

Gafst upp á hrotum kærastans og skaut hann
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég var dáinn í sjö mínútur“ – „Þetta sá ég hinum megin“

„Ég var dáinn í sjö mínútur“ – „Þetta sá ég hinum megin“