Live Science segir að í gröfunum séu múmíur og virðist sem heilu fjölskyldurnar hafi verið jarðsettar saman. Einnig eru kistur, pappaöskjur (gerðar úr endurunnum papírus eða efni) og fleira.
Patrizia Piacentini, fornleifafræðingur við háskólann í Mílan á Ítalíu, sagði að þetta hafi verið rík borg og íbúarnir hafi stundað viðskipti við Norður-Afríku og aðra hluta Afríku.
Fornleifafræðingar komust á snoðir um grafstæðið 2015 þegar ólöglegur uppgröftur fór fram þar. Í kjölfarið voru fornleifafræðingar fengnir til að hefja uppgröft á svæðinu og hófst hann 2019 og stýrir Piacentini verkinu en um samvinnuverkefni ítalskra og egypskra fornleifafræðinga er að ræða.