fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Pressan

Vísindamenn vara við – Getur orðið verra en reiknað er með

Pressan
Laugardaginn 25. mars 2023 19:00

Mynd: Guðfinna Berg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hætta er á að margar stórar borgir fari undir sjó í framtíðinni. Hlutar af stærstu borgum Asíu geta verið komnir undir sjó um næsta aldamót.

Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar að sögn CNN.

Margar stórborgir í Asíu standa við sjó. Alltaf var vitað að hætta væri á flóðum en samkvæmt því sem kemur fram í rannsókninni þá hefur hugsanlega verið vanmetið hversu illa hlutirnir geta farið.

Blanda af náttúrulegum og ófyrirsjáanlegum sveiflum á sjávarborðinu og væntanlegum afleiðingum loftslagsbreytinganna geta gert stórborgir í suðausturhluta Asíu að stað mikilla flóða.

Aizue Hu, einn af höfundum rannsóknarinnar, segir að við verðum að búa okkur undir hið versta.

Manila, höfuðborg Filippseyja, er ein þeirra borga sem eru í hættu. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar geta flóð orðið 18 sinnum algengari þar í framtíðinni en áður og það aðeins af völdum loftslagsbreytinganna.

Ef sveiflur á sjávarborðinu eru teknar með í reikninginn, þá hækkar talan úr 18 sinnum algengari í 96 sinnum algengari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings