fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Hún var farin í siglingu með skemmtiferðaskipi – Þá sendi eiginmaðurinn tölvupóst til útgerðarinnar

Pressan
Laugardaginn 10. maí 2025 19:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í janúar 2024 sigldi skemmtiferðaskipið Carnival Sunrise úr höfn í Miami í Bandaríkjunum og var stefnan tekin á Jamaíka. Skömmu eftir að skipið lét úr höfn, barst útgerðinni nafnlaus tölvupóstur.

„Hæ, ég held að einhver um borð í skemmtiferðaskipinu sé með sprengju,“ stóð í tölvupóstinum. Ferð þess var samstundis stöðvuð og bæði bandaríska og jamaíska strandgæslan voru settar í viðbragðsstöðu. Odditycentral skýrir frá þessu.

Fram kemur að leitað hafi verið í rúmlega 1.000 klefum í skipinu og að ferðinni hafi seinkað um margar klukkustundir. Allt krafðist þetta mikils mannafla og kostaði stórfé.

Aðgerðirnar leiddu í ljós að ekki var fótur fyrir þessari tilkynningu og að ungur maður stóð á bak við þetta.

Lögreglan rakti slóð tölvupóstsins fljótlega til Joshua Darrell Lowe II, frá Bailey í Michigan. Hann viðurkenndi að hafa sent tölvupóstinn í reiði yfir að unnusta hans og fjölskylda hennar hefðu farið í siglingu án hans og hefðu skilið hann eftir til að hugsa um gæludýrin þeirra.

Saksóknari sagði að ætlun hans hafi verið að skemma fríið fyrir þeim og hann hafi talið þetta einu leiðina sem var fær.

Lowe var dæmdur í átta mánaða fangelsi og þótti sleppa vel því allt að fimm ára fangelsi liggur við broti af þessu tagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana