fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Pressan

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar

Pressan
Laugardaginn 10. maí 2025 15:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það styttist í sumarfríið og þar með jafnvel flugferðir til útlanda. Þegar flugið er pantað, vilja margir tryggja sér sæti við glugga eða neyðarútganginn en það þarf yfirleitt að greiða aukalega fyrir þessi sæti. En það er hægt að fá enn betra sæti fyrir mun minni upphæð og jafnvel ókeypis.

Nordkurier skýrir frá þessu og segir að sætin sem um ræðir séu öftustu sætin, þau sem eru næst klósettinu. Þetta eru að mati miðilsins vanmetnustu sætin í flugvélum.

Travelbook segir að margir kostir fylgi því að sitja í þessum sætum, eitthvað sem stærstu aðdáendur þess að sitja við neyðarútgang ættu að skoða.

Það er aðallega aukið öryggi fólgið í að sitja í þessum sætum. Time Magazine skoðaði flugslysasögu 35 ára og komst að þeirri niðurstöðu að miðsætið í öftustu sætaröðinni sé öruggasta sætið í flugvélinni.

Þess utan fær maður oft meiri ró og frið í þessum sætum en ef maður situr framar í vélinni. Það sitja engin börn fyrir aftan þig og sparka í sætið, engin hnerrar í hnakkann á þér og kannski situr enginn við hliðina á þér af því að enginn vildi bóka þau sæti.

Það er einnig kostur að klósettið er mjög nálægt og þú þarft ekki að þramma í gegnum farþegarýmið til að komast á klósettið. En á móti kemur að stundum getur myndast röð við hliðina á sætinu þínu þegar fólk bíður eftir að komast á klósettið. Svo er ekki hægt að útiloka að nefið þitt fái öðru hvoru að kenna á því sem farþegar losa sig við á klósettinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fimm óvæntar ástæður fyrir að þú ert alltaf þreytt(ur)

Fimm óvæntar ástæður fyrir að þú ert alltaf þreytt(ur)
Pressan
Í gær

Hryllingur ungbarns – Lík hennar fannst í kommóðu fyrir 2 árum

Hryllingur ungbarns – Lík hennar fannst í kommóðu fyrir 2 árum
Pressan
Í gær

McVities segir að fólk hafi borðað súkkulaðikex á rangan hátt síðustu 100 árin

McVities segir að fólk hafi borðað súkkulaðikex á rangan hátt síðustu 100 árin
Pressan
Í gær

Sefur þú best með þunga eða létta sæng? Það segir kannski meira um þig en þú átt von á

Sefur þú best með þunga eða létta sæng? Það segir kannski meira um þig en þú átt von á
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna gleymir þú hvað þú ert að gera

Þess vegna gleymir þú hvað þú ert að gera
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún var farin í siglingu með skemmtiferðaskipi – Þá sendi eiginmaðurinn tölvupóst til útgerðarinnar

Hún var farin í siglingu með skemmtiferðaskipi – Þá sendi eiginmaðurinn tölvupóst til útgerðarinnar