fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Pressan

Undarlegt mál í sundlauginni – „Þá vissum við að eitthvað var að“

Pressan
Laugardaginn 25. mars 2023 22:00

Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sundlaugarferð er venjulega hin besta skemmtun og ekki skemmir fyrir að slíkar ferðir bæta heilsuna. En flestum myndi eflaust bregða ef hár þeirra yrði grænt við það að fara í sund.

Það er það sem gerðist í sundlaug í Kragerø í Noregi nýlega. Þar lentu sundlaugargestir, og starfsfólk, í því að hár þeirra varð grænt.

Vitað er að vatn, sem inniheldur klór, og sól geta breytt háralit fólks en það var ekki það sem gerðist í sundlauginni. Se og Hør skýrir frá þessu.

Fram kemur að Cathrine Aspnes, 29 ára, hafi farið heim með grænt hár. „Ég uppgötvaði allt í einu að hárið var grænt, aðallega á toppnum. Mér brá mikið og skildi ekki hvað hafði gerst,“ sagði hún.

Hún reyndi að fjarlægja litinn með tómatsósu, sem var húsráð sem hún fann, og auðvitað sjampói, en án árangurs.

Hún skýrði frá þessu á Facebook og sá þá að sumir vina henna höfðu lent í þessu sama.

Vandinn fór ekki fram hjá stjórnendum sundlaugarinnar. „Þegar hár fólks varð grænt, vissum við að eitthvað var að. Það var vegna þess að tveir starfsmenn sögðu okkur á mánudaginn að þeir væru með grænt hár eftir að hafa notað baðaðstöðuna,“ sagði Júlíus Finnsson, yfirmaður bygginga sveitarfélagsins, í samtali við VG.

Hann sagðist telja að gömul koparrör í sturtunum ættu sök á græna litnum.

Engin heilsufarshætta stafar af þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings