fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Pressan

Fimm góð ráð til að losna við geitunga

Pressan
Sunnudaginn 11. júní 2023 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarið er komið og það þýðir að hin ýmsu skordýr eru vöknuð til lífsins. Það gleður ekki alla því skordýr eiga það til að leita inn í hús eða koma nærri fólki utanhúss.

Geitungar eru líklega eitt óvinsælasta skordýrið og margir eru hreinlega skíthræddir við þá. Þeir geta verið mikil plága, sérstaklega ef þeir hafa byggt bú sitt nærri heimili þínu eða jafnvel innanhúss.

Það er hægt að nota hinar ýmsu aðferðir til að halda geitunum fjarri. CountryLiving.com fjallaði um nokkrar góðar aðferðir sem eru sagðar nýtast vel gegn geitunum.

Piparmyntuolía getur komið að góðu gagni við að halda geitungum frá heimilinu. Blandaðu nokkrum dropum saman við vatn í úðabrúsa og úðaðu síðan á svæðum þar sem geitungar venja komur sínar, til dæmis í gluggakarma og við svalahurðir.

Það er hægt að búa til einfalda geitungagildru með því að skera toppinn af plastflösku og snúa honum öfugt og setja ofan í flöskuna, þannig að þetta líkist trekt. Fylltu flöskuna með blöndu af eplaediki, sykri og vatni. Settu flöskuna síðan á stað sem geitungar venja komur sínar á. Þeir laðast að sætri lyktinni og fara ofan í flöskuna en geta ekki komist upp úr henni.

Það er líka hægt að nota pappírspoka til að fæla geitunga frá. Geitungar forðast venjulega að gera sé bú nærri öðru geitungabúi. Ef þú hengir tóman pappírspoka upp platar þú geitungana því þeir halda að þetta sé geitungabú og forðast það.

Geitungar laðast að mat en ef þú heldur öllu hreinu og fjarlægir mat og matarafganga hafa þeir ekki í neitt að sækja. Best er að geyma mat í lokuðum ílátum og tryggja að ruslatunnan sé tæmd reglulega.

Geitungar eru ekki mjög góðir í að fljúga og ef þú notar viftu getur þú komið í veg fyrir að þeir fljúgi nærri heimili þínu. Settu viftu nærri dyrum og gluggum og geitungarnir eiga erfitt með að fljúga inn í húsið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglustjórinn reiður og sorgmæddur: „Pabbi, af hverju gerðirðu mér þetta?“

Lögreglustjórinn reiður og sorgmæddur: „Pabbi, af hverju gerðirðu mér þetta?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýr risastjörnusjónauki uppgötvaði 2.104 nýja loftsteina í sólkerfinu á 10 klukkustundum

Nýr risastjörnusjónauki uppgötvaði 2.104 nýja loftsteina í sólkerfinu á 10 klukkustundum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“

Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný lög í Texas kveða á um að Boðorðin tíu verði að vera sýnileg í öllum skólastofum

Ný lög í Texas kveða á um að Boðorðin tíu verði að vera sýnileg í öllum skólastofum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi