fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Betra er seint en aldrei – Póstkort skilaði sér á leiðarenda eftir 42 ár

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 15. október 2022 16:30

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir 42 árum sendi systir Ludwina Verhoeven henni póstkort þegar hún var í fríi. En kortið skilaði sér ekki á leiðarenda fyrr en nýlega, 42 árum síðar.

Á kortinu stendur aðeins „Kveðjur“ og Veronica, Jan og Matthijs. Kortið er stílað á Ludwina og Piet Verhoeven í Nieuw-Vennep sem er suðvestan við Amsterdam. Kortið var póstlag sumarið 1980 í Hoeven í Brabant í Hollandi. The Guardian skýrir frá þessu.

Fallegar myndir af tjaldsvæði prýða kortið sem hollenska póstþjónustan kom nýlega í hendur Ludwina. Á það var stimplað: „Óþekkt/ófullnægjandi heimilisfang“. Kortið var nýlega borið út til tjaldsvæðisins, sem myndirnar eru frá. Starfsfólkið þar skýrði frá málinu á samfélagsmiðlum og þannig bárust Ludwina fréttir af kortinu. Það var síðan sent til hennar.

Í viðtali við Omroep Brabant útvarpsstöðina sagði Ludwina að að eiginmaður hennar Piet, sem kortið er einnig stílað á, og mágur hennar, Jan, séu báðir látnir. Jan lést fyrir fjórum árum og Piet í febrúar. „Þess vegna finnst mér svo sérstakt að fá þetta kort,“ sagði hún.

Hún sagðist ekki vita af hverju kortið skilaði sér allt í einu núna: „Heimilisfangið á því er rétt. Ég bý enn á þessum stað. Af hverju kom það allt í einu fram núna?“

Hjá hollenska póstinum var lítið um svör en talsmaður fyrirtækisins sagði að þegar póstur var flokkaður áður fyrr hafi komið fyrir að kort hafi týnst. Einnig sé hugsanlegt að það hafi verið borið út í rangt hús árið 1980 og hafi verið þar, þar til nýlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu