fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
Pressan

Óhugnanlegar grunsemdir í Danmörku – Undirbýr hópur háttsettra hermanna valdarán?

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 15. júlí 2021 06:02

Danskir hermenn á æfingu. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Getur verið að í Danmörku sé hópur valdamikilla aðila, þar á meðal háttsettra hermanna, sem er að undirbúa valdarán? Þessari spurningu velta margir fyrir sér þessa dagana í kjölfar brottreksturs Lars Gram úr varaliði úrvalssveita hersins.

Hann var rekinn úr varaliðinu og þar með hernum nýlega eftir að hann heimsótti tvo félaga sína úr úrvalssveitunum og reyndi að fá þá til liðs við hóp sem hyggur á blóðuga uppreisn og valdarán.

Leyniþjónusta hersins vildi ekki tjá sig um málið þegar Jótlandspósturinn leitaði eftir svörum um mál Gram og þessa hóps sem er sagður vera til.

Það var Berlingske sem fyrst skýrði frá brottrekstri Gram en hann hefur áður komist í kastljósið en þá var hann í einkennisbúningi sínum þegar hann tók þátt í mótmælum Men In Black gegn sóttvarnaaðgerðunum.

Berlingske fékk aðganga að málsskjölunum varðandi mál Gram á grundvelli upplýsingalaga og segir að í þeim komi meðal annars fram að Gram hafi sagt félaga sínum úr úrvalssveitunum að „uppreisn verði gerð þar sem ofbeldi verður beitt“.

„Þú gafst einnig til kynna að markmiðið með heimsókn þinni væri að fá umræddan samstarfsmann þinn til liðs við hóp sem samanstendur af valdamiklu fólki, þar á meðal háttsettum hermönnum,“ segir meðal annars í uppsagnarbréfi hersins til Gram.

Í samtali við Berlingske vísaði Gram því á bug að hann hafi reynt að fá samstarfsmenn sína til liðs við slíkan hóp né að vita nokkuð um hann. Hann sagðist heldur ekki styðja hugmyndir um uppreisn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Gekkst undir lífsnauðsynlega aðgerð: Eitt fór þó fram hjá læknum og afleiðingarnar voru hræðilegar

Gekkst undir lífsnauðsynlega aðgerð: Eitt fór þó fram hjá læknum og afleiðingarnar voru hræðilegar
Pressan
Í gær

Játaði morð á föður sínum eftir 17 tíma yfirheyrslu: Síðar kom í ljós að faðirinn var alls ekki dáinn

Játaði morð á föður sínum eftir 17 tíma yfirheyrslu: Síðar kom í ljós að faðirinn var alls ekki dáinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leggja til stjórnarskrárbreytingu svo hægt sé að svipta glæpamenn ríkisborgararétti

Leggja til stjórnarskrárbreytingu svo hægt sé að svipta glæpamenn ríkisborgararétti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvatti dóttur sína margoft til að láta lóga hundinum – Hefði betur farið að ráðum hennar

Hvatti dóttur sína margoft til að láta lóga hundinum – Hefði betur farið að ráðum hennar