Allt frá 1987 hefur danska veðurstofan DMI verið með veðurstöð, sem heitir Summit, á toppi Grænlandsjökuls, í um 3.200 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar er að vonum mjög kalt og það snjóar oft, eða þannig var það allt þar til fyrr í mánuðinum. Þá rigndi nefnilega við veðurstöðina og var það í fyrsta sinn sem það gerðist síðan hún var sett upp fyrir 34 árum.
Alþjóðlegir vísindamenn, sem voru á staðnum, urðu vitni að þessu og loftslagssérfræðingar DMI hafa staðfest mælinguna. Í færslu frá DMI á Twitter kemur fram að vænta megi þess að það muni rigna oftar á toppi jökulsins í framtíðinni vegna áhrifa loftslagsbreytinganna.
Martin Stendel, sérfræðingur hjá DMI, skrifaði einnig á Twitter um rigninguna og sagði að fyrir liggi upplýsingar um bráðnun á toppi jökulsins en þær fengust með því að rannsaka ískjarnasýni sem voru tekin úr jöklinum. „Já, rigning hefur í fyrsta sinn verið staðfest á Summit síðan veðurathuganir hófust 1987,“ skrifaði hann og bætti við að mjög sjaldgæft væri að bráðnun eigi sér stað á toppi jökulsins. En þar sem bráðið vatn frýs aftur sé hægt að sjá ummerki um það í ískjörnum og á síðustu 2.000 árum hafi það aðeins gerst 2021, 2019, 2012, 1889, 1094, 992, 758, 753 og 244 að bráðnun hafi átt sér stað á toppi jökulsins.
https://twitter.com/MartinStendel/status/1428443090067599365?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1428443090067599365%7Ctwgr%5E%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fpublish.twitter.com%2F%3Fquery%3Dhttps3A2F2Ftwitter.com2FMartinStendel2Fstatus2F1428443090067599365widget%3DTweet