Þann 28. apríl síðastliðinn var Lavinia Mounga á leið með farþegaflugvél frá Salt Lake City til Hawaii í frí. Hún var þá gengin 29 vikur með son sinn, Raymond. Þegar flugvélin var hálfnuð á leið sinni til Hawaii fékk Mounga hríðir og spurði áhöfnin því í kallkerfi vélarinnar hvort einhver læknir eða hjúkrunarfræðingur væri um borð. Svo vel vildi til að læknir var um borð og að auki þrír hjúkrunarfræðingar sem starfa á fyrirburadeild.
Það má því segja að Mounga hafi valið vel þegar hún ákvað að fljúga með þessu tiltekna flugi þar sem svo velmenntaðir farþegar voru með í för.
„Þegar flugið var um það bil hálfnað kom neyðarkall. Ég hef upplifað svona áður og venjulega er áhöfnin þá skýrt og greinilega að spyrja hvort læknir sé um borð. Þetta kall var ekki þannig og það var mjög áríðandi,“ sagði Dale Glenn, læknir, sem var um borð í vélinni. The Guardian skýrir frá þessu.
Auk hans gáfu þrír hjúkrunarfræðingar, sem starfa á fyrirburadeild sjúkrahúss í Kansas, sig fram og tóku fjórmenningarnir til óspilltra málana við að aðstoða Mounga. Nauðsynlegur búnaður, sem notaður er við fæðingar, var ekki um borð og því var gripið til þess ráðs að nota skóreimar til að klippa á naflastrenginn og binda um hann. Snjall úr var síðan notað til að mæla hjartslátt drengsins. „Við vorum öll að reyna að vinna í mjög litlu og þröngu rými í flugvél en það er mikil áskorun. En samvinnan var frábær,“ sagði Glenn.
Læknar og hjúkrunarfræðingar komu síðan um borð í vélina þegar hún lenti í Honolulu þremur klukkustundum síðar. Var Mounga og Raymond þá ekið frá borði í hjólastól og lét drengurinn heyra vel í sér á leiðinni út. Mounga hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi en Raymond mun dvelja á fyrirburadeild þar til hann getur farið heim.