fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þýska ríkisstjórnin vill herða sóttvarnaaðgerðir – Vilja setja útgöngubann á

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 16. apríl 2021 06:56

Fjórða bylgjan geisar nú. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýska ríkisstjórnin vill að sambandsríkin herði sóttvarnaaðgerðir hið fyrsta til að takmarka útbreiðslu kórónuveirunnar en Þýskaland er nú í þriðju bylgju faraldursins. Í gær greindust 25.000 smit og 247 létust. Samtals hafa tæplega 80.000 látist af völdum COVID-19 í landinu.

„Við vitum, frá reynslu okkar síðasta haust, hvað gerist ef við bregðumst ekki hratt við,“ sagði Jens Spahn, heilbrigðisráðherra á fréttamannafundi í gær.

Á þriðjudaginn samþykkti ríkisstjórnin lagafrumvarp um nýjar sóttvarnareglur sem eiga að gilda á landsvísu, þar á meðal er útgöngubann að næturlagi. Þingið hefur ekki enn samþykkt þetta en Spahn vill að sambandsríkin byrji strax að innleiða þessar reglur. „Tíminn líður. Nú höfum við tækifæri til að grípa til aðgerða. Enginn á að bíða eftir samþykkt sambandsþingsins,“ sagði hann að sögn Die Welt.

Sambandsríkin 16 hafa mikið sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt en nýju lögin munu þýða að þau munu ekki lengur hafa lokaorðið þegar kemur að kórónuveirunni. Lögin eru sögð vera „neyðarúrræði“ en auk útgöngubanns kveða þau á um að loka skuli öllum verslunum nema þeim sem selja algjörar nauðsynjavörur.

Robert Koch Institut, sem er smitsjúkdómastofnun Þýskalands, telur að álagið á sum sjúkrahús sé nú komið að þolmörkum. Spahn sagði að það væri forgangsverkefni að koma í veg fyrir að álagið á heilbrigðiskerfið verði of mikið og það verði að hlusta á ákall gjörgæslulækna og taka það alvarlega. Nú liggja um 5.000 sjúklingar á gjörgæsludeildum landsins en reiknað er með að sjúklingarnir verði orðnir 6.000 í lok mánaðarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér