fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Tæplega helmingur kjósenda Trump mun styðja hann í nýjum flokki

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 25. febrúar 2021 21:30

Trump er til rannsóknar vegna meints kosningasvindls.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir sem kusu Donald Trump í forsetakosningunum á síðasta ári styðja hann margir hverjir enn og eru tryggir stuðningsmenn hans. Ef hann stofnar nýjan flokk getur hann væntanlega reiknað með góðum stuðningi. 46% þeirra sem kusu hann í forsetakosningunum myndu snúa baki við Repúblikanaflokknum og fylgja Trump yfir í nýjan flokk.

Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem  Suffolk University og USA Today gerðu. Niðurstöðurnar sýna að enn er stór hluti stuðningsmanna Trump honum trúr þrátt fyrir áhlaupið á þinghúsið þann 6. janúar.

„Okkur finnst að Repúblikanar berjist ekki nægilega mikið í okkar þágu og við sjáum öll að Donald Trump leggur eins mikið á sig og hann getur fyrir okkur daglega,“ hefur USA Today eftir Brandon Keidl, 27 ára fyrirtækjaeiganda i Milwaukee, um stuðning hans við Trump.

Réttarhöldin yfir Trump í öldungadeildinni nýlega þar sem hann var ákærður í annað sinn vegna meintra brota í embætti sýndu vel þær átakalínur sem eru í Repúblikanaflokknum um hlutverk Trump í flokknum. Sjö Repúblikanar greiddu atkvæði með sekt Trump sem var þó sýknaður af ákærunni. Í kjölfar réttarhaldanna hefur Trump átt í útistöðum við Mitch McConnell sem er leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni og hæst setti kjörni fulltrúi flokksins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér