fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Dæmd í tveggja ára fangelsi – Reyndi að opna flugvéladyr í háloftunum

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 18. febrúar 2020 19:30

Mynd úr safni. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég ætla að drepa ykkur öll.“ Þetta öskraði Chloe Haines, 26 ára, þegar hún reyndi að opna flugvéladyr þann 22. júní á síðasta ári. Hún var þá farþegi í flugvél sem var á leið frá Stansted flugvellinum í Lundúnum til Dalaman í Tyrklandi.

Áhafnarmeðlimum tókst að yfirbuga Haines og halda þar til vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum í Essex en þangað var henni beint eftir að Haines reyndi að opna dyrnar. Tvær orustuþotur voru sendar til móts við vélina og fylgdu henni inn til lendingar. Vélin var frá Jet2 flugfélaginu. Haines var handtekin þegar vélin var lent.

Sky segir að fyrir dómi hafi komið fram að Haines hafi „misst minnið og muni ekki hvað gerðist“ um borð í flugvélinni. Hún hafði drukkið áfengi ofan í lyf sem hún tók.

Haines játaði brot sitt fyrir dómi. Verjandi hennar sagði að hún „væri ung kona sem glími við ýmis vandamál“. Hann taldi það þó að það mætti telja henni til tekna að hún hafi tekið meiri þátt í starfi AA samtakanna í kjölfar atburðarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu