fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Smitaðist af sjaldgæfri svínaflensu

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 9. nóvember 2020 06:14

Mynd úr safni. Mynd: EPA-EFE/JULIEN WARNAND

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjúklingur í Kanada greindist nýlega með sjaldgæfa svínaflensu eða Inflúensu A (H1N2). Viðkomandi býr í Alberta. Smitið uppgötvaðist þegar sjúklingurinn leitaði til læknis um miðjan október vegna flensueinkenna.

Fox News skýrir frá þessu. Hann var með væg einkenni og jafnaði sig fljótt af flensunni. Ekkert bendir til að veiran, sem veldur flensunni, hafi breiðst frekar út að sögn yfirvalda sem reyna nú að finna upptök smitsins.

H1N2 er veira sem er í öndunarfærum svína um allan heim. Þetta er smitsjúkdómur af A-stofni inflúensu. Veiran berst ekki í fólk þótt það borði kjöt af sýktu dýri.

Kanadísk yfirvöld segjast taka málinu mjög alvarlega og að almenningur verði að vera meðvitaður um að á síðustu árum hafi nokkur tilfelli mismunandi inflúensu fundist á nokkrum stöðum í Norður-Ameríku. H1N2 sé mjög sjaldgæf en aðeins hafi 27 tilfelli af henni verið staðfest í heiminum frá 2005 og aldrei áður í Kanada.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie