

Á J-deginum, sem er alltaf fyrsti föstudagurinn í nóvember, er jólabjór Tuborg settur á markaðinn og má hefja sölu hans klukkan 20.59, ekki mínútu fyrr. Auk þess fer starfsfólk Tuborg um í bæjum og borgum og dreifir bjór ókeypis til fólks.
Þetta er áratugagömul venja sem hefur notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina. Allt frá 1984 hefur sama auglýsingin runnið yfir sjónvarpsskjái Dana og er óhætt að segja að hún hafi öðlast einhverskonar hefðarstöðu í dönsku samfélagi. Ekstra Bladet hefur eftir talsmanni Carlsberg að það hafi ekki verið auðveld ákvörðun að aflýsa J-deginum en það sé einfaldlega ekki rétt að halda fast í hann að þessu sinni vegna ástandsins.
Bjóráhugamenn þurfa þó ekki að örvænta um jólabjórinn því hann mun eins og alltaf koma í sölu á J-deginum.