Óhætt er að segja að stórborgin New York líkist sviðsmynd í heimsendamynd þessa dagana. Átta milljónir manna reyna nú að halda sig fjarri öðru fólki til að forðast að smitast af COVID-19 veirunni. Breiðstræti borgarinnar eru nánast mannlaus, veitingahús eru lokuð sem og barir og leikhúsin á Broadway. Það sama á við um flestar verslanir. Milljónir manna sitja því heima og bíða eftir að ástandið batni. Margir í litlum íbúðum á þéttbýlum svæðum. Segja má að óttinn liggi í loftinu.
Nú eru um þrjár vikur síðan að fyrsta smitið var staðfest í borginni en í dag eru fimm prósent allra staðfestra smita í heiminum í New York. Bill de Blasio segir að ástandið eigi enn eftir að versna.
„Allir Bandaríkjamenn eiga skilið að heyra hinn skelfilega sannleika. Þetta verður verra. Apríl og maí verða miklu verri.“
Sagði hann í samtali við NBC News.
Rúmlega 20.000 manns hafa nú greinst með smit í New York ríki, þar af 8.000 í New York borg. 157 eru látnir. Sýni eru tekin úr mjög mörgum og hafa rannsóknir sýnt að veiran breiðist hratt út. 13 prósent þeirra sem hafa greinst með smit þurfa á læknismeðferð að halda að sögn New York Times.
Donald Trump hefur nú sent þjóðvarðliða til starfa í New York. Aðalhlutverk þeirra er að flytja lyf og sjúkragögn og setja upp færanleg sjúkrahús. Þjóðvarðliðar hafa einnig verið kallaðir út í Kaliforníu og Washington ríki en þar er ástandið einnig slæmt.