fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Laug til um veikindi til að sleppa við að mæta til vinnu – Reyndist dýrkeypt

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 07:00

Færð þú frið í sumarfríinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

58 ára dönsk kona ætlaði í sumarfrí með fjölskyldu sinni í byrjun júlí en hún hafði einmitt fengið sumarfrí á þessum tíma árin á undan og reiknaði með að fá aftur frí í byrjun júlí. En þegar vaktaplanið hennar var birt kom í ljós að hún átti að vinna þessa viku og því var ekki annað að sjá en fjölskyldan þyrfti að fara án hennar í frí.

Konan greip því til þess að tilkynna sig veika eftir að hafa margreynt að fá vaktaplaninu breytt. Hún sagðist þurfa að gangast undir skurðaðgerð í vikunni áður en hún ætlaði að vera í fríi og yrði því frá í þessar tvær vikur.

Hún var því í fríi þessar vikur en allt komst þetta upp þegar hún mætti aftur til vinnu og var hún kærð fyrir skjalafals og fjársvik.

Undirréttur í Hróarskeldu dæmdi konuna í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þetta en hún viðurkenndi sök. Ekki fylgir sögunni hvort hún starfi enn á sama staðnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein