Sadef Khadem, sem varð á laugardaginn fyrsta íranska konan til að taka þátt í skráðum hnefaleika-bardaga, hefur frestað heimkomu sinni til Tehran, höfuðborgar Íran. Ástæðan er sú að handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur henni.
Íranska hnefaleikasambandið gaf það út á mánudaginn að það tæki ekki þátt í að skipuleggja bardaga fyrir konur og bæri því enga ábyrgð á bardaga Khadem. Sambandið bætti svo við að íranskar konur ættu að klæðast slæðu öllum stundum, innan sem utan landsteinanna.
Reuters fjallar um þetta.
Þar að auki hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur Mahyar Monshipour, fyrrverandi heimsmeistara í hnefaleikum, en hann skipulagði bardagann sem fór fram í Frakklandi. En hann ætlaði sér að ferðast aftur til Íran með Khadem. Monshipour sem er fæddur og uppalinn í Íran er orðinn franskur ríkisborgari.
Bardagi helgarinnar endaði með sigri Khadem á hinni frönsku Anne Chauvin, en bardaginn er skráður sem áhugamannabardagi.
Útlendingastofnun Frakklands hefur ekki tjáð sig um málið. En samband Frakklands og Írans er orðið ansi stirt eftir að sendiherra Frakklands í Bandaríkjunum tjáði sig um kjarnorkuáætlun Írans.