Ein sagðist hafa stundað kynlíf með unnusta sínum fyrir framan salernin í verslunarmiðstöð.
„Ég man ekki af hverju við fórum ekki inn á salernin. Kannski var það spennan við að einhver myndi sjá okkur. Þetta var rétt fyrir lokun og starfsmaður kom og náði að stynja út úr sér að nú væri búið að loka. Við vorum svo skömmustuleg. Þetta var EKKI skipulagt – okkur langaði bara skyndilega.“
Síðan víkur sögunni að Íslandi.
„Kærastinn minn og ég stunduðum kynlíf á fjalli og í Bláa Lóninu á Íslandi. Þetta var skipulagt – en samt ekki . . .“
Sú þriðja sagðist hafa stundað kynlíf í kirkju.
„Ég hef stundað kynlíf inni á salerni í kirkju. Þetta var með strák sem ég hafði oft verið með. Ég varð að finna stað þar sem enginn myndi koma og trufla okkur og það eina sem mér datt í hug var salerni kirkju í um 20 mínútna göngufjarlægð frá heimili mínu. Við gerðum það og hann keyrði mig heim – þetta varð fasti staðurinn okkar þar til ég fékk bílpróf.“