fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Pressan

Skyndilega birtist sendill við útidyrnar – Var með fjölda pakka sem húsráðandinn átti enga von á

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 16. ágúst 2018 07:56

Mæðgurnar hjá sendingunni. Mynd:Twitter/@R_tatas

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa eflaust lent í því að hafa lánað vinum eða ættingjum farsímann sinn í smá stund þar sem viðkomandi hefur þurft að gera eitthvað. Stundum endar þetta með að eitthvað vandræðalegt er birt á samfélagsmiðlaaðgangi símaeigandans eða þá að undarlegar og skrýtnar myndir eru teknar á hann.

En móðir sex ára stúlku í Arizona í Bandaríkjunum átti enga von á því að það myndi hafa töluverð eftirköst þegar hún leyfði dóttur sinni að nota farsímann sinn til að panta Barbie dúkku frá Amazon nýlega. Dúkkuna fékk dóttirin af sérstöku tilefni.

Þegar dótturina var farið að lengja eftir dúkkunni fékk hún farsíma móður sinnar lánaðan til að kanna stöðu sendingarinnar hjá Amazon. En það sem móðirin vissi ekki var að dóttirin, Kaitlin, notaði tækifærið til að panta leikföng, tölvuleiki og spil að andvirði 300 dollara. Þetta lét hún auðvitað senda heim.

Móðirin vissi því ekkert af málinu fyrr en næsta dag þegar sendill frá Amazon birtist á tröppunum með fjölda kassa. Hún skildi ekkert í þessu en þegar hún skoðaði notendareikninginn sinn hjá Amazon áttaði hún sig á hvað Kaitlin hafði gert.

Sendillinn mættur með pöntunina. Mynd:Twitter/@R_tatas

Frænka Kaitlin, Ria Diyalou, birti færslu um þetta á Twitter og myndir af sendingunni góðu. Á myndunum má sjá að Kaitlin er meira en lítið ánægð með sendinguna og sér ekki eftir að hafa pantað allar þessar vörur.

Móðir Kaitlin hefur nú ákveðið að gefa barnaspítala öll leikföngin en Kaitlin dvaldi einmitt á þessum barnaspítala þegar hún var kornabarn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Vinsælasti meinti morðinginn í dag deilir 27 hlutum sem hann er þakklátur fyrir

Vinsælasti meinti morðinginn í dag deilir 27 hlutum sem hann er þakklátur fyrir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gefur lítið fyrir gagnrýni á kynferðislega framsetningu persónu hennar – „Hlutgerðu mig“

Gefur lítið fyrir gagnrýni á kynferðislega framsetningu persónu hennar – „Hlutgerðu mig“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

R. Kelly vill afplána 30 ára dóm í stofufangelsi út af meintu feigðarflani stjórnsýslunnar

R. Kelly vill afplána 30 ára dóm í stofufangelsi út af meintu feigðarflani stjórnsýslunnar