Á myndinni má meðal annars sjá Richard Nixon, Ronald Reagan og Abraham Lincoln að ógleymdum Donald Trump Bandaríkjaforseta. Repúblikanaklúbburinn er nafn myndarinnar hér að ofan sem er eftir bandaríska málarann Andy Thomas.
Andy þessi fékk á dögunum símtal frá Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir að sá síðarnefndi sá myndina sem sýnir núverandi og fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.
„Hann sagði við mig að hann hefði séð margar málaðar myndir af sér en yfirleitt líkaði honum ekki við þær. En hann sagðist kunna vel að meta þessa mynd,“ segir Thomas í samtali við Washington Post.
Darrell Issa, þingmaður Repúblikanaflokksins, hafði séð myndina fyrir nokkru og keypt hana. Issa gaf Trump síðan myndina og ákvað Trump að hafa samband við Andy og þakka honum fyrir að hafa málað hana. Þess má geta að myndin hangir nú uppi á vegg á skrifstofu Trumps í Hvíta húsinu í Washington.