fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Pressan

Með hnífa á Laugavegi – Fólk á þrítugsaldri spreyjaði á húsgafl

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 19. júní 2018 06:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 01.41 í nótt var tilkynnt um slagsmál á Laugavegi og að þar væru fjórir á móti einum. Átökin voru yfirstaðin þegar lögreglan kom á vettvang og enginn vildi hafa kröfur uppi í málinu. Lögreglan hafði afskipti af einum mannanna en hann var með tvo ólöglega hnífa á sér sem voru haldlagðir. Einnig er vopnaburður á almannafæri bannaður.

Á þriðja tímanum í nótt var tilkynnt um tvo karla og konu, öll á þrítugsaldri, sem voru að spreyja á húsgafl á Laugavegi. Lögreglumenn ræddu við fólkið sem neitaði að hafa verið að spreyja þrátt fyrir að athæfi þeirra hafi verið tekið upp með eftirlitsmyndavél.

Fimm ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn þeirra var með lítilræði af fíkniefnum meðferðis. Annar reyndist vera sviptur ökuréttindum og sá þriðji hafði ekki öðlast ökuréttindi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 5 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið