Frábær pasta uppskrift sem slær alltaf í gegn! Gott er að gera salatið kvöldinu áður og geyma það í kæli þar til það er borið fram.
Hráefni
- 400 g Penne pasta
 
- 1.5 dl Sweet chilisósa
 
- 150 ml Majones
 
- 400 ml Sýrður rjómi 18%
 
- 3 msk Hunang
 
- 2 Paprikur
 
- 1 Agúrka
 
- 5 g Basilíka
 
- 1 stk Salt
 
- 1 stk Pipar
 
 
 
Leiðbeiningar
- Sjóðið pastað skv leiðbeiningum. Leyfið að kólna.
 
- Blandið blautu hráefnunum saman í skál og hellið yfir pastað.
 
- Skerið grænmetið niður og blandið saman við.
 
- Endið á að saxa kryddjurtir smátt og bæta við.
 
- Þetta salat er gott að gera kvöldinu áður og geyma í kæli þar til það er borið fram.