fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Hefur þú lagað til í kryddskápnum þínum nýlega?

Sjöfn Þórðardóttir
Föstudaginn 4. mars 2022 10:25

Bragð kryddsins dofnar með tímanum og því er mikilvægt að fylgjast með aldri kryddana og geymslutíma. Mynd/ aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staðreyndin er sú að krydd er mjög misjafnt, það fer meðal annars eftir því hvar það er ræktað og hvernig þurrkað krydd er blandað.  Sumar ferskar kryddjurtir eru efnaauðugar, eins og graslaukur, steinselja svo dæmi séu tekin. Þær hafa mikið af A- og C- fjörvum og einnig járn ríkar. Þær er auðvelt að rækta, þurrka og frysta en geymslutíminn er líka mikilvægur. Kryddskápar og skúffur eru þær hirslur sem gjarnan verða eftir þegar farið er í tiltekt í eldhúsinu en það er ekki síður mikilvægt að yfirfara kryddin og taka stöðuna á dagsetningunum hvenær þau renna út.

Krydd og þurrkaðar kryddjurtir verður að geyma á dimmum, þurrum og köldum stað. Allt krydd á að geyma í glerílátum með þéttum lokum. Það er ekki æskilegt að geyma krydd í plastílátum, sumar tegundir tæra plastið og kryddið dofnar frekar. Ef krydd eru keypt í plastpokum eða bréfum er brýnt að losa það í litlar glerkrukkur eða glös til geymslu. Jafnframt að merkja glerkrukkurnar og hvenær kryddið var losað í ílátin til að fylgjast með geymslutímanum.

Bragð kryddsins dofnar með tímanum því það er bundið rokgjörnum olíum og því er mikilvægt að fylgjast með aldri kryddana og geymslutíma. Geymslutími krydds fer eftir í hvaða formi kryddið er.

Hér má sjá geymslutíma krydds:

  • Heilt krydd/heil korn 4-5 ár
  • Mulið krydd 2 ár
  • Kryddjurtir 1 ár

Munið því að fara reglulega yfir kryddskápana ykkar og skúffur og aðgætið allar dagsetningar og endurnýjið kryddin eftir þörfum. Krydd er yfirleitt dýr og því er best að kaupa lítið í einu og aðeins ný og góð krydd.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa