Dögurður eða „brunch“ sameinar morgunmat og hádegismat í eina máltíð eins og flestir vita, en sú uppfinning er líklega með þeim betri. Það er fátt notalegra en að útbúa góðan dögurð um helgar þegar heimilisfólkið sefur aðeins lengur og njóta þess að borða svo saman í rólegheitum.
Ketóbolla með steiktu eggi og kotasælu
1 ketóbolla skorin í tvennt
1 egg
3 msk. kotasæla
1 avókadó
Rifinn ostur
Steinselja
Salt og pipar
Béarnaisesósa til hliðar
Byrjið á því að setja kotasælu á annan helming ketóbollunnar (botninn). Stráið rifnum osti yfir kotasæluna og setjið í ofninn við 180 gráður í um 5 mínútur.
Á með spælið þið egg á pönnu, setjið vel af salti og pipar yfir. Leggið eggið á brauðbolluna, skerið niður avókadó í þunnar sneiðar og leggið ofan á eggið.
Klippið niður ferska steinselju yfir og berið fram með béarnaisesósu og steiktum kartöflum til hliðar.
Steiktar kartöflur
Kartöflur
Olía
Rósmarín
Salt
Pipar
Smjör
Skerið nokkrar kartöflur niður í smáa bita, setjið í eldfast form. Kryddið kartöflurnar með salti, pipar og smá rósmaríni, hellið ólífuolíu yfir kartöflubitana og setjið í ofn við 200 gráður í um 20 mínútur.Eftir að kartöflurnar hafa aðeins fengið að mýkjast í ofninum, setjið þið þær á heita pönnu og steikið þær upp úr smjöri þar til þær verða stökkar og fallega brúnleitar.
Morgunverðar tortillur eru hrikalega góðar og fljótlegar. Það er snilld hversu fljótlegt er að skella í þær og nýta má nánast hvað sem er til í ísskápnum. Ég miða við eina tortilla köku á mann, ½ avókadó og 1 egg á hverja pönnuköku.
Tortillakökur
Salsasósa
Rifinnostur
Avókadó
Egg
Salt og pipar
Kóríander
Sýrður rjómi
Byrjið á því að útbúa eggjahræru: Þeytið egg í skál, kryddið með salti og pipar og steikið á pönnu. Smyrjið tortilla-pönnukökur með salsasósu, skerið niður avókadó bita og leggið í pönnukökuna, eggjahrærunni er svo bætt ofan á, rifnum osti stráð aðeins yfir og kökurnar settar inn í ofn í um 5 mínútur eða þannig að osturinn fái aðeins að bráðna og kökurnar verði ljósbrúnar, forðist að hafa þær of lengi inni ef þið hyggist rúlla þeim upp áður en þið berið þær fram, þær eiga það til að verða stökkar í ofninum mjög fljótt.
Klippið niður ferskar kryddjurtir eins og steinselju eða kóríander og setjið yfir og berið fram með sýrðum rjóma.
Verði ykkur að góðu.