Una Dögg Guðmunsdóttir heldur úti matarblogginu unabakstur.is
Með hækkandi sól er tilvalið að bjóða upp á sumarlega tertu með helgarkaffinu. Ferskir ávextir gera tertuna sumarlega en tilvalið er að bjóða upp á freyðivínsglas með eða sódavatn með ferskum ávöxtum og skála fyrir væntanlegu sumri með samkomugleði og blóm í haga.
Þeytið saman eggjahvítur og lyftiduft og bætið sykrinum smám saman við þar til marengsinn er orðinn alveg stífur.
Rice crispies er bætt varlega saman við með sleikju.
Leggið blönduna svo út á tvær arkir af bökunarpappír í tvo jafna hringi ca 23-25 cm í þvermál hvorn um sig.
Setjið í ofninn og bakið í um 60 mínútur.
Karamellu krem
50 gr smjör
150 gr rjómasuðusúkkulaði
4 stk eggjarauður
4 msk flórsykur
Aðferð:
Byrjið á að bræða saman smjör og súkkulaði við vægan hita og passið að hræra vel í blöndunni. Látið aðeins kólna.
Þeytið saman eggjarauðurnar og flórsykurinn.
Blandið því næst öllu saman og hrærið vel.
Setjið um 3/4 karamellunna á neðri marengsbotninn, þeytið 500ml af rjóma og setjið á eftir karamellunni, næst er efri botninn settur á og þá er tilvalið að skreyta með restinni af karamellunni yfir ásamt fallegum ávöxtum.
Við bakstur á marengs verða eftir eggjarauður sem tilvalið er að nýta í heimagerðan ís.