fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Bakað með lakkrís – Fjórar uppskriftir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Sunnudaginn 22. september 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lakkrísinn góði hefur fylgt Íslendingum um áratugaskeið og virðast vinsældir hans aldrei dvína. Þótt lakkrís sé ekki það hollasta sem við getum látið ofan í okkur þá má stundum gera vel við sig með einni lúku eða svo. Einnig er einstaklega skemmtilegt að baka með lakkrís – eitthvað sem allir lakkrísunnendur þurfa að prófa.

Ótrúlega einfalt Það er ekkert mál að búa til lakkrís heima fyrir.

Heimagerður lakkrís

Hráefni:

8 msk. smjör
1 bolli sykur
1/2 bolli „corn syrup“
1/2 bolli sæt mjólk („sweetened condensed milk“)
1/4 bolli melassi
1/8 tsk. sjávarsalt
3/4 bolli heilhveiti
1 1/2 msk. anísolía
1 1/2 tsk. svartur matarlitur

Aðferð:

Setjið bökunarpappír í ílangt form, sirka 23 sentimetra langt, og smyrjið það líka. Leyfið pappírnum að koma upp á hliðunum svo auðveldara verði að taka lakkrísinn úr forminu. Setjið smjör, sykur, „corn syrup“, mjólkina, melassa og salt í pott og hitið yfir háum hita þangað til það nær 130°C hita. Hér þarf að nota hitamæli. Takið pottinn af hellunni og blandið hveiti, olíunni og matarlitnum út í. Hrærið vel saman. Hellið blöndunni í formið og leyfið þessu að kólna inn í ísskáp í 30 til 45 mínútur. Takið lakkrísinn úr forminu og færið yfir á skurðarbretti. Skerið lakkrísinn í lengjur og snúið upp á þær. Auðvitað er líka hægt að leika sér með þetta og hafa lakkrísinn í laginu eins og maður vill. Setjið herlegheitin á bökunarpappír og aftur inn í ísskáp í 20 til 30 mínútur.

Óhefðbundin Þessi klikkar ekki.

Sjúk lakkríseplakaka

Botn – Hráefni:

2 1/2 bolli hveiti
1 msk. sykur
1/2 tsk. salt
225 g kalt smjör, skorið í teninga
5–6 msk. ískalt vatn

Fylling – Hráefni:

5–6 lítil epli (án hýðis og skorin í litla bita)
4 msk. maíssterkja
6 msk. púðursykur
1 tsk. kanill
1 msk. vanilludropar
1 msk. sítrónusafi
3 msk. lakkrísduft

Ofan á – Hráefni:

3 msk. smjör
1 egg
2 msk. mjólk
3 msk. lakkríssíróp

Aðferð:

Byrjum á botninum. Blandið saman hveiti, sykri og salti í skál. Blandið smjörinu saman og vinnið það inn í þurrefnablönduna með höndunum þar til blandan líkist mulningi. Hellið ískalda vatninu saman við, einni matskeið í einu, og hnoðið þar til deig hefur myndast. Skellið deiginu inn í ísskáp í um tvær klukkustundir. Skiptið því síðan í tvo hluta og fletjið út. Stillið ofninn á 200°C og setjið annan hlutann í smurt bökuform. Búið síðan til fyllinguna. Blandið öllum hráefnum í fyllinguna vel saman í skál og látið standa í um 30 mínútur. Sigtið mesta vökvann frá eplafyllingunni og hellið henni ofan á bökubotninn. Skerið strimla úr deiginu sem þið eruð ekki búin að nota og raðið þeim fallega ofan á eplafyllinguna. Skerið smjörið í litla bita og setjið hér og þar ofan á eplafyllinguna. Blandið saman eggi og mjólk og penslið deigið sem þið settuð ofan á eplakökuna. Bakið við 200°C í sirka 10 mínútur. Minnkið síðan hitann í 175°C og bakið í 30 til 40 mínútur eða þar til bakan er orðin fallega gullinbrún. Svo er lakkríssírópinu hellt yfir til að gera lakkrísbragðið enn sterkara.

Tilvaldar í veisluna Það er erfitt að standast lakkrístrufflur.

Æðislegar lakkrístrufflur

Hráefni:

150 g dökkt súkkulaði
90 g rjómi
1 1/2 msk. smjör (skorið í litla bita)
50 g lakkrísbitar
5–9 msk. lakkrísduft

Aðferð:

Saxið súkkulaðið og setjið það í skál sem þolir háan hita. Hitið rjómann og smjör í potti eða í örbylgjuofni þar til blandan byrjar að sjóða. Hellið rjómablöndunni yfir súkkulaðið og leyfið því að standa í nokkrar mínútur á meðan súkkulaðið bráðnar. Hrærið allt vel saman, setjið plastfilmu yfir súkkulaðiblönduna og geymið í ísskáp í að minnsta kosti fimm klukkustundir, eða yfir nótt. Gerið litlar kúlur úr súkkulaðiblöndunni og stingið litlum lakkrísbita í miðjuna. Rúllið kúlunum upp úr lakkrísduftinu og þá eru trufflurnar tilbúnar.

Kladdkakan Svíar kunna sitt fag.

Sænsk kladdkaka með lakkrís

Kaka – Hráefni:

100 g smjör
2 egg
270 g sykur
2 tsk. lakkrískökuskraut
3 msk. lakkrísduft
130 g hveiti
4 msk. kakó
smá salt

Krem – Hráefni:

75 g dökkt súkkulaði
75 ml rjómi
3–4 msk. lakkríssíróp
lakkrískökuskraut (til að skreyta með)

Aðferð:

Byrjum á kökunni. Hitið ofninn í 200°C og smyrjið hringlaga form. Bræðið smjörið og setjð það til hliðar. Blandið saman eggjum, sykri, lakkrískökuskrauti og lakkrísdufti. Bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Bætið þurrefnunum saman við eggjablönduna og hrærið þar til allt er orðið blandað saman. Hellið deigi í form og bakið í lægsta hluta ofnsins í 15 til 17 mínútur. Svo er það kremið. Hitið rjómann og lakkríssírópið í potti eða örbylgjuofni þar til rjóminn byrjar að sjóða. Saxið súkkulaði og hellið rjómablöndunni yfir það. Leyfið þessu að standa í smá stund og hrærið síðan vel. Leyfið blöndunni að kólna aðeins áður en þið hellið henni yfir kalda kökuna. Skreytið síðan með lakkrískökuskrautinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa