fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Matur

Súkkulaðihúðaðar piparmöndlur

Íris Hauksdóttir
Fimmtudaginn 1. ágúst 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sykurminni útgáfa af vinsælasta nammi landsins. Athugið að magnið lakkrísduftinu er smekksatriði, það má setja meira eða minna, allt saman eftir smekk hvers og eins.

1 dl kakósmjör
2,5-3 msk. hlynsýróp
0,5 – 0,7 dl hreint kakó
bragðbæta með góðu salti og hreinu vanilludufti
2 dl ristaðar möndlur
3 tsk. lakkrísduft t.d. Lakrids by Johan Bulow

Bræðið kakósmjörið yfir vatnsbaði. Setjið í skál og blandið öllu saman við. Gott að hræra með písk til að forðast kekki. Ef ykkur finnst súkkulaðið ekki samlagast látið blönduna þá kólna aðeins og hrærið með písk þangað til hún lítur vel út. Ef hún er hinsvegar farin að stífna of mikið og erfitt að vinna með hana þá skuluð þið hita hana aðeins yfir vatnsbaði. Finnið mót sem þið ætlið að nota, setjið möndlurnar í botninn, setjið piparduftið yfir og veltið möndlunum vel upp úr piparduftinu. Hellið súkkulaði blöndunni að lokum yfir. Kælið í 20-30 mín. Skerið í litla bita og njótið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
29.08.2024

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins
Matur
03.08.2024

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?
Matur
22.06.2024

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar
Matur
18.06.2024

Bjóða upp á hamborgara frá ýmsum heimshornum

Bjóða upp á hamborgara frá ýmsum heimshornum