fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Kynning

Hjálmaverkefni Kiwanis: 4.755 börn fengu hjálm að gjöf í ár

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 11. júní 2026 15:16

Afhending á Höfn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árlegt hjálmaverkefni Kiwanis fór fram í vor, en í ár fá 4.755 börn í fyrsta bekk hjálma. 

„Verkefnið hófst árið 1991 þegar Kaldbakur á Akureyri gaf sex ára börnum hjálma. Síðan jókst þetta og jókst og allir Kiwanisklúbbar landsins taka þátt,“ segir Jóhannes Steingrímsson formaður hjálmanefndar Kiwanis.

Upphaflega sáu klúbbar um að fjármagna þá hjálma sem hver klúbbur gaf, það breyttist árið 2004 þegar verkefnið varð að landsverkefni. Kiwanisfélagi hélt þá á fund Eimskipa og spurði hvort félagið vildi styrkja verkefnið. Svarið var jákvætt og Eimskip hefur verið eini styrktaraðili hjálmaverkefnis Kiwanis allar götur síðan.

„Það er ekkert smáræði sem Eimskip gerir fyrir okkur og öll börnin með þessu,“ segir Jóhannes.

Afhending í Garðabæ

Í ár eru hjálmarnir 4.755 talsins og fá öll sex ára börn, börn í fyrsta bekk, hjálm.

Jóhannes segir hjálmafjöldann frá árinu 2004 vera um 120 þúsund hjálmar. Kiwanisfélagar fara í bekkina með hjálmana og í hverjum kassa er einnig endurskinsmerki, buff og leiðbeiningar um hvernig á að nota hjálminn. Áður var gert meira úr afhendingunni þegar afhending fór fram, lögreglan bauð börnum að koma með hjólin sín þar sem þau voru yfirfarin og segir Jóhannes einhverja klúbba vera með slíkt fyrirkomulag enn þá.

„Hjálmarnir endast í þrjú ár, framleiðandinn ábyrgist þá ekki lengur vegna plastsins í þeim. Og væntanlega höfuð barnsins orðið stærra,“ segir Jóhannes.  „Hjálmurinn hefur bjargað einu barni svo ég viti til. Það var haft samband við okkur af því hjálmurinn brotnaði, en barnið slapp. Við áttum aukahjálm og sendum hann til barnsins. Við eigum alltaf nokkra á lager, ef eitthvað kemur upp á, þá reynum við að verða við því að senda nýjan hjálm.“

Afhending í Garðabæ

Jóhannes sem búsettur er á Akureyri er staddur á Selfossi þegar samtalið á sér stað. Hann og annar félagi sem búsettur er í Vestmannaeyjum munu sjá um afhendingu þar í bæ. Jóhannes byrjar hjálmaverkefnið ár hvert í janúar með því að hringja í alla skóla landsins og fá fjölda fyrstu bekkinga í hverjum skóla. Hjálmarnir eru síðan pantaðir og sér Eimskip um flutning til landsins, sér um að pakka fyrir hvern og einn skóla samkvæmt upplýsingum frá Jóhannesi og síðan að keyra sendingarnar í skólana.

„Hjálmarnir eru allir eins á litinn. Við reyndum einu sinni að vera með bláa hjálma og bleika hjálma, og þá vildu strákarnir bleika og stelpurnar þá bláu. Við breytum um lit með nokkurra ára millibili. Í ár er liturinn dimmblár.“

Jóhannes segist ekki vita hvaða litur verður að ári því hann kveður verkefnið eftir afhendinguna í ár vegna aldurs. Nýr formaður mun því taka við hjálmaverkefninu.

„Þetta hefur verið mikil vinna, en gefandi og skemmtileg. En það er bara gott að hvíla sig og leyfa öðrum að taka við,“ segir Jóhannes.

Verkefnið er þarft samfélagsverkefni og hafa börn og foreldrar þeirra verið þakklát fyrir gjöfina. Aðspurður segir Jóhannes verkefnið halda áfram svo lengi sem Eimskip vilji styrkja verkefnið.

„Þeir eiga hrós skilið. Það er stórkostlegt hvað þeir hafa gert mikið.“

Hjálmaverkefnið hefur vakið athygli erlendra klúbba sem hafa viljað taka verkefnið upp í sínu heimalandi.

„Við höfum fengið margar fyrirspurnir erlendis frá um hvernig við gerum þetta og hvernig þeir geta gert þetta hjá sér. Ég veit um klúbb í Holllandi sem prófaði þetta sjá sér og ég vona að það hafi gengið hjá þeim. Við sendum í eitt skipti 200 hjálma til Gimli í Kanada til að sýna þeim hvað við værum að gera og það voru klúbbar þar sem vildu skoða þetta verkefni.“

Kynna má sér hjálmaverkefnið og Kiwanis á vef félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
31.01.2025

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum
Kynning
29.01.2025

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu
Kynning
08.11.2024

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla
Kynning
06.11.2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024