fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Kynning

Eplaedik er einstaklega góður kostur fyrir heilsuna

Kynning
Kynningardeild DV
Mánudaginn 13. mars 2023 11:32

Eplaedik í töfluformi er frábær lausn fyrir þá sem vilja taka eplaedik á bragðlausan hátt. Fullkomin blanda fyrir alla. mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eplaedikið frá New Nordic er fáanlegt bæði í töfluformi sem og formi hlaups sem er einstaklega bragðgott og góður kostur fyrir þá sem ekki vilja bragðið af edikinu.

Eplaedik hefur verið notað sem heilsubótarefni í aldanna rás en ekki er það að ástæðulausu þar sem eplaedikinu fylgja hinir ýmsu jákvæðu kostir sem efla líkamsstarfsemi okkar.

Mörgum líkar ekki við bragðið af eplaedikinu og jafnvel sleppa því þá alfarið en þá eru töflurnar og hlaupin frá New Nordic afar góður kostur.

Eplaedik er allra meina bót

Góðir kostir eplaediks hafa ekki leynt sér en talið er að eplaedik geti haft jákvæð áhrif á hina ýmsu þætti tengda líkamsstarfsemi okkar.

Neysla eplaediks hefur svo afar góð áhrif á meltinguna og hjálpar til við að örva framleiðslu á magasýru sem er mikilvægt fyrir góða meltingu. Að auki hefur eplaedik verulega jákvæð áhrif á blóðsykur sem hefur þar af leiðandi jákvæð áhrif á daglega sykurlöngun og matarlyst.

Yfir 30 ára reynslu af jurtum og lífseflandi eiginleikum þeirra

Sérfræðingarnir hjá New Nordic eru víða þekktir fyrir brennandi áhuga sinn á lækningarmætti náttúrunnar og hefur fyrirtækið yfir 30 ára reynslu af jurtum og lífseflandi eiginleikum þeirra.

Með því að notast við náttúrulegar jurtir, þróar New Nordic m.a. hágæða jurtabætiefni sem hafa það að markmiði að stuðla að eðlilegum efnaskiptum fitu, heilbrigðri lifrar starfsemi, úthreinsun líkamans og jafnvægi í blóðsykri. Allt eru þetta eiginleikar sem geta hjálpað til við þyngdartap, en þó er mikilvægt að muna að bætiefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og hreyfingar.

Minni sykurlöngun

Apple Cider töflurnar frá New Nordic innihalda ætiþistil og túnfífil sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína ásamt króm sem stuðlar að viðhaldi eðlilegs glúkósamagns í blóðinu og slær þannig á sykurlöngun.

Blandan inniheldur að auki kólín sem stuðlar að eðlilegum fituefnaskiptum sem og viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrar.

Apple Cider í bragðgóðu hlaupformi fyrir alla

New Nordic hefur að auki þróað eplaedik í formi hlaups sem er einstaklega góður kostur. Hlaupin eru með bragðgóðu eplabragði sem gerir upplifunina enn betri dags daglega. Hlaupin eru skemmtileg viðbót við eplaedikstöflurnar og henta þeim sem ekki vilja eða geta af einhverjum ástæðum tekið inn töflur.

Eplaedikshlaupin eru fullkomin fyrir alla sem vilja njóta góðs af heilsueflandi eiginleikum þess án súra bragðsins.

Hlaupin innihalda 400 mg af gæðaeplaediki í hverjum skammti, eru sykur- og glútenlaus og henta 12 ára og eldri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
19.02.2024

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri