fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Himintjöld: Fyrir einfaldan ferðamáta og skemmtilega útiveru

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 27. maí 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Himintjöld er fyrirtæki sem hóf starfsemi sína vegna löngunar stofnenda þess til að ferðast með þaktjald um Ísland. Benedikt Þ. Sigurjónsson og Björn Hákon Sveinsson hófu innflutning á þaktjöldum frá Gordigear í maí 2015. Við stofnun fyrirtækisins var sú ákvörðun tekin að fá ekkert utanaðkomandi fjármagn, heldur vinna fyrirtækið upp frá grunni, eitt skref í einu á eigin verðleikum og elju. Í dag flytja þeir félagar inn fjölbreytt úrval útivistarvöru ásamt því að selja og leigja þaktjöld frá bæði Gordigear og iKamper.

Mynd: Ívar Sæland

Þaktjöldin, sem eru fest við þakboga á bílum, eru einstaklega þægilegur og meðfærilegur gistikostur á ferðalögum í náttúru Íslands. Að sögn Benedikts og Björns eru þaktjöld farin að ryðja sér til rúms hér á landi en áður fyrr sáust bara erlendir ferðamenn með slíkan búnað: „Þó svo að Gordigear tjöldin séu hönnuð fyrir ástralska náttúru henta þau einkar vel til ferðalaga á Íslandi. Kuldinn frá jörðinni nær ekki upp í gegnum dýnuna og þú kemst hvert sem er með tjöldin á þakinu, misgóðir malarvegir og ár eru ekkert vandamál. Það hafa ríkt efasemdir um að þessi tjöld þyldu vindasama veðráttu hér. En reynslan síðustu tvö árin hefur sýnt okkur að þaktjöldin þola bæði rokið og rigninguna betur en hefðbundin tjöld,“ segja þeir félagar.

Önnur merkileg nýjung sem Himintjöld býður upp á eru svokallaðar bálpönnur frá UMAS í Noregi. Fyrir utan afar fallegt útlit bjóða bálpönnurnar upp á notalegan yl ef kveikt er upp í þeim við sumarbústaðinn eða á sólpallinum heima, einnig er hægt að grilla á þeim, hita sér kaffi og margt fleira með þeim aukahlutum sem í boði eru. Eitt dæmi um bálpönnu er sú sem hefur hlotið heitið Höfðingi. Um er að ræða nýjustu gerðina frá UMAS og jafnframt þá stærstu. Pannan sjálf er 80 sentimetrar í þvermál en þrífóturinn er 180 sentimetra hár. Hægt er að nota hvort tveggja við og kol til að kveikja upp í bálpönnunum og einnig er hægt að breyta hæð grillgrindarinnar yfir eldinum til að stjórna hitanum. Öllum bálpönnum fylgir öskuskál og keðja með króki til að hengja kaffikönnur yfir bálinu.

Óðinn, önnur bálpanna og sú vinsælasta, er með stillanlegum fótum og því stöðug hvar sem er. Hægt er að fá alls konar aukahluti með Óðni, til dæmis kaffikönnur, steikarpönnu, hliðarborð, vindhlífar, lok, yfirbreiðslu ásamt vöfflu-, samloku- og pylsujárnum úr burstuðu pottstáli sem nota má með öllum bálpönnunum.

Meðal annarrar útivistarvöru sem Himintjöld býður upp á eru ýmiss konar handhægar ferðagræjur frá BioLite fyrir útileguna sem allar miða að því að framleiða rafmagn úr hita eða sólarorku á meðan þú eldar mat yfir eldinum.
Himintjöld rekur netverslun og netleigu þannig að yfirbygging er í lágmarki. Þetta gerir fyrirtækinu kleift að bjóða vörurnar á mjög hagstæðu og sanngjörnu verði, hvort sem er leigt eða keypt. Allar upplýsingar, pöntunarform og annað sem skiptir máli, er að finna á vefsíðunni himintjold.com og frekari spurningum er svarað á tölvupóstfanginu: upplysingar@himintjold.is .

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum