Prinsessan, Álfabakka 1B
Prinsessan er rótgróin og sívinsæl kjólabúð fyrir konur á öllum aldri, staðsett í Mjóddinni. Verslunin hefur verið starfandi í 19 ár og þangað koma í bland við nýja viðskiptavini margir sem átt hafa viðskipti við verslunina í mörg ár. Prinsessan er með mesta úrval landsins af síðkjólum og eru þeir í stærðunum frá X-s upp í 6X.
Núna er komin ný sending í Prinsessuna af mjög spennandi vörum, stuttum og síðum kjólum, stelpukjólum, toppum, túnikum og skóm. Von er á enn fleiri vörum eftir því sem nær dregur vorinu.
Ávallt eru í boði í versluninni útsölukjólar á verðbilinu 5.000 til 18.000 krónur. Enn fremur er 10% afsláttum af síðkjólum sem þarf að stytta og laga – þeim sem ekki eru þegar á útsölu eða niðursettu verði.
„Við erum með flotta brúðarkjóla og flotta kjóla á mömmu, tengdamömmu, vinkonurnar og brúðarmeyjarnar í brúðkaupið. Oft eru keyptir litaðir stelpukjólar í brúðkaupin og svo er hann jólakjóllinn næstu jól. Svo eru líka brúðir sem kaupa fallega litaða samkvæmiskjóla til að gifta sig í og við höfum nóg af þeim. Auk þess eru hér fínlegir kvenskór og stelpuskór við kjólana,“ segir Svanhildur Eyjólfsdóttir hjá Prinsessunni.
Prinsessan er til húsa að Álfabakka 14B í Mjóddinni
Opið er virka daga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá kl. 11 til 14
Sjá nánar á vefsíðunni prinsessan.is og Prinsessan á Facebook. Þar má fá þokkalega hugmynd um úrvalið en þó er þar alls ekki að finna allt sem í boði er. Langbest er að koma í verslunina til að sjá allt úrvalið.